www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The Departed
Mánudagur, 05. mars 2007

The Departed, endurgerð Scorsese á kínversku tríólógíunni "Infernal Affairs", er algjör snilld.

Djöfull rokka Nicholson, DiCaprio og Wahlberg feitt - úff. Smá cheesy dialógur á köflum sem Mark var úthlutað - but hey.. I'm a forgiving person.

Scorsese er einn af þessum töffurum sem hefði átt að vera búinn að fá Óskarinn fyrir löngu - og þó þetta sé kannski ekki besta mynd sem hann hefur gert, þá segir það kannski meira um hversu vel að óskarnum hann er kominn - að hann fái hann einmitt fyrir þessa.

Mikið andskoti fer það honum Matt Damon annars vel að leika overrated asna. Mjög sannfærandi. Ég hef reyndar alltaf verið sannfærð um að maðurinn sé overrated asni og þar sem hann getur ekki leikið - en glansaði í gegnum þessa mynd - segi ég bara..

...I rest my case.

Nefið á Damon hreinlega ofsækir mig í síendurteknum martröðum. Lausnin er líklega að stofna söfnunarreikning til styrktar nefaðgerðar honum til handa. Mark my words, svona uppbrett kartöflunef geta tekið á sig skelfilega mynd í martröðum - ég ætti auðvitað að fara í mál.

Ég er líka ennþá sannfærðari en nokkrusinni fyrr um að Matt og bakkabróðir hans þarna.. Ben Affleck hafi miskunnarlaust myrt einhvern saklausan bókmenntanörd sem þeir fundu á bar og rænt af honum handritinu "Good Will Hunting" til að komast á blað í Hollywood. Þú þarft ekki annað en að horfa í tómt augnarráð beggja til að komast að þessari niðurstöðu. Blasir við.

Annars fór dagurinn í að setja upp nýjar gardínur í stofunni, búin að leita og leita vikum saman og fann loksins lausn sem ég er verulega sátt við.

Finnst ykkur þær ekki ógeðslega töff?

glitnir_gardinur.png

hehehe


| anna | 0:04 |
comments

wahahahahahahahahahahahahahahaha hahahahahahahahahahahahahahahaha hahahahahahahahahahahahahahahaha
hahahahahahah laughing laughing laughing

Nr. 1 | posted by: Harpa | 5.03.2007 | 2:13:42 | [+] |

hahahahaha laughing melodramatic what

Nr. 2 | posted by: hildigunnur | 5.03.2007 | 8:47:46 | [+] |

Nú þeir stálu handritinu af mér... hef alveg gleymt að segja þér þá lífsreynslusögu embarassed passaðu þig bara, næst gætu þeir herjað á anna.is og stolið af henni.

Nr. 3 | posted by: Sigga | 5.03.2007 | 9:14:13 | [+] |

alveg brilljant heildarlausn á temprun ljósmagns í alrýminu cool

Nr. 4 | posted by: baun | 5.03.2007 | 9:55:10 | [+] |

Passar bara nokkuð vel við rauða plussið ...

Nr. 5 | posted by: Hugz | 5.03.2007 | 10:59:14 | [+] |

Kannski nýtt trend. Um að gera að skrá patent strax. ef útvegsbankinn er ekki búinn að því nú þegar.

Nr. 6 | posted by: Steini | 5.03.2007 | 11:36:24 | [+] |

Það varst semsagt þú, sem tókst Kattholts-Ídu þemað á höfuðstöðvar Glitnis.

Nr. 7 | posted by: LangiSleði | 5.03.2007 | 13:16:31 | [+] |

Þetta er reyndar liður í átaksverkefni á vegum Reykjavíkurborgar til að efla sundlaug vesturbæjar.

5% þeirra sem sjá þessa mynd munu fletta mér upp í símaskránni til að finna heimilisfangið og fara í bíltúr til að sjá hvort ég gerði þetta í alvörunni. Fyrir utan blokkina er fólk að dreifa boðsmiðum í sund.

98% þeirra kvenna sem lesa þetta blogg munu hinsvegar skoða nefið á sér sérstaklega næst þegar þær standa fyrir framan spegil. Aðeins 84% karlmanna munu tékka á þessu.

Nr. 8 | posted by: anna | 5.03.2007 | 13:31:36 | [+] |

Ógeðslega flottar hahaha. Geta fleiri fengið svona?

Nr. 9 | posted by: Meinvill | 5.03.2007 | 16:27:42 | [+] |

Það sem þarf til að setja upp svona gardínur er eftirfarandi:

1 Glitnis handklæði
1 þrífót
1 digital myndavél
1 tölvu með photoshop
15 mínútur

hehe

Nr. 10 | posted by: anna | 5.03.2007 | 18:34:23 | [+] |

Múhahhahahaha. Hlæ ég eins og brjálæðingur í svefngalsa mínum.
Og þér að segja, alveg á milli okkar, þá hef ég alltaf verið með meiriháttar minnimáttarkennd yfir nebba mínum frá því að Kristján bekkjabróðir minn sagði í 6 ára bekk að ég væri með kartöflunef. Og það er pínu út í loftið líka. Hef reynt að láta lítinn Matchbox bíl renna niður nebbann til að sjá hvort hann sé uppbrettur í stökkpall. Nú rifjast upp gamalgrónar áhyggjur af þessu, og hugleiðingar um flysjun af nebbanum orðnar miklar. Svo þetta var afskaplega leiðinlegt allt saman.

Nr. 11 | posted by: Guðrún | 5.03.2007 | 23:49:53 | [+] |

Mig vantar handklæði. Koma þessi í bláu líka?

Nr. 12 | posted by: Ingolfur | 6.03.2007 | 0:11:02 | [+] |

Enda skrifaði William Goldman handritið, það bara hlýtur að vera. Sama hvað hver segir (hann sjálfur meðtalinn).

Nr. 13 | posted by: Gunni | 6.03.2007 | 16:15:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web