Föstudagur, 30. mars 2007
Bloggið mitt er í raun tvíþætt. Það er annarsvegar "published" efni og hinsvegar "drafts". Published er sá hluti sem hver sem er getur lesið, obviously. Drafts er efni sem ég ætla að birta seinna (og gleymi stundum að gera) en stærri hluti af drafts er eitthvað sem ég skrifa bara fyrir mig og er þar af leiðandi oft mjög persónulegt og ekki ætlunin að birta - ever.
Ég var að fara í gegnum eldgamalt drafts dót í fyrradag, fann t.d. færslunar hér á undan sem ég hef gleymt að birta fyrir löngu síðan. Ég var ennþá gift þegar ég skrifaði aðra svo við erum að tala um ca 3 - 4 ára gamlar færslur. Fór lengra áfram og fann meira. Sumt var erfitt að lesa. Sumt fyndið. Sumt var heartbreaking. Var búin að gleyma mörgu.
Intentionally.
Þessar tvær færslur sem ég birti eru kaldhæðnar og mér finnst þær meinfyndnar - en mig langar ekki að fara til baka. Það er ekkert fyrir mig þar. Ég get ekki einu sinni blúsað yfir fortíðinni. Þó sumt hafi ekki farið eins og ég vildi, þá gaf ég því allavega allt sem ég átti.
Allt sem ég átti þá var ekki nóg, svo það er pointless að pæla í því.
Annars gerðist svolítið í gær, svolítið alveg ógeðslega fyndið. Mér fannst það reyndar ekkert fyndið á því augnarbliki sem það gerðist. Það er í drafts en ég kem líklega til með að birta það eftir árshátíð Glitnis sem er á morgun.
Get ekki birt það fyrir árshátíðina. Það lesa mig of margir í bankanum.
hehehe
Sjáumst.