www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Snilldar tenging
Fimmtudagur, 08. mars 2007

les_jude_blogg.png

Þegar Ásgeir hringdi í mig og spurði hvort hann mætti taka viðtal við mig fyrir tímarit sýningarinnar Tækni og vit 2007 var ég að sofna inní stofu. Ég fór með símann inní svefnherbergi og spjallaði við Ásgeir sem fannst eins og hann þekkti mig - ef hann les anna.is, þá þekkir hann mig soldið. Það er ekkert flóknara.

Christ.. er að fatta þetta núna. Það hringir í mig karlmaður og hver eru mín fyrstu viðbrögð? Jú.. ég fer með hann uppí rúm. Jesús!

Neinei, krakkarnir voru að horfa á sjónvarpið og ég heyrði ekki það sem hann var að segja. Hitt er samt skemmtilegra.

Í vinnunni í morgun kíkti ég í tímaritið sem var gefið út fyrir sýninguna. Hafði ekki tíma til að setjast niður og lesa en það var nóg fyrir mig að sjá fyrirsögnina og fyrstu málsgreinina. Þvílík snilldar tenging á milli mín og Stefáns, ég er ennþá að hlæja að þessu.

Í kvöld fór ég á sýninguna og kippti með mér eintaki af blaðinu. Þar er ég titluð "bankastarfsmaður".

Beisik.

Ætli Jude Law sé ekki það eina sem tengir mig og Stefán. Enda fjallar mitt blogg ekki um tilgangsleysi allra hluta heldur um sambönd, kærasta, ást, hamingju, skemmtanir, hreinlæti (ætla í bað á eftir) kynlíf og aðra hluti sem gefa lífinu tilgang.

H.. hold it.

"Kærasti, samband, ást, hamingja, kynlíf og skemmtanir." Bíddu.. en.. en.. þýðir það þá.. a.. að ég lifi tilgangslausu lífi?

Ohhh.. demit.


| anna | 19:49 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web