www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óska eftir manneskju í þrif
Þriðjudagur, 06. mars 2007

Frá því ég skildi við manninn minn hef ég eytt föstudagskvöldum þegar það er pabbahelgi í að þrífa íbúðina.

Ég er ekki að grínast.

Ef ég hef "misst af" svona föstudagskvöldi, farið út með fólki eða eitthvað, þá eru næstu tvær vikur bara ónýtar því ruslið hleðst upp í kringum mig án þess að ég fái rönd við reist. Ég er nefnilega yfirleitt búin að bóka mig allar helgar (er að bóka í apríl núna) - nema föstudagskvöldin - og ég þoli ekki að þrífa þegar börnin eru heima. Bara þoli ekki að gera það.

Um daginn var ég að segja frá þessu í vinnunni þegar ég áttaði mig á því að þetta er tómt rugl. Maður á að outsorsa svona hluti ef maður getur og þar sem ég get það hef ég ákveðið að ráða einhvern í vinnu við að þrífa heima hjá mér. Shit. Mér líður eins og alka í játningarpontunni.

Ég heiti Anna og ég ætla að láta einhvern ANNAN þrífa heima hjá mér.

Mér fannst þetta einu sinni ferlega púkó og algjör óþarfi. En mér fannst líka ferlega púkó og algjör óþarfi að eiga uppþvottavél - þangað til ég eignaðist eina. Ég veit eiginlega ekki hvaða helvítis hugsanavilla var í gangi með uppþvottavélarnar. Ég get ekki fundið neitt jákvætt við að vaska upp, bara tímaeyðsla. Þeim sem finnst gaman að vaska upp - good for you. Ég hef bara fullt af öðrum hlutum að gera - eins og að plokka á mér augabrúnirnar, fara í ræktina og það er einmitt eitthvað sem ég ætla að taka upp á föstudagskvöldum. Það og að liggja í baði í hreinni íbúð. Vinna. Börnin hjá pabba sínum og ég ein í heiminum.

Í gær kom ég heim úr vinnunni, spjallaði við börnin, fór í bað og lagðist uppí rúm klukkan hálf átta. Bara aaaaðeins. Vaknaði rétt fyrir klukkan átta í morgun. Frumburðurinn ákvað að leyfa mömmu sinni að sofa, ekkert smá yndisleg dóttir. Hún græjaði bara bróður sinn, vippaði upp snarli, kom honum í náttföt og uppí rúm. Ég í steinrotuð allan tímann. Algjör lúxus. Ég á verulega góð börn.

Þetta hinsvegar gengur ekki lengur svona og ég þoli ekki skítinn heima hjá mér. Þannig er það nefnilega að síðustu tvö pabba-föstudagskvöld hef ég verið upptekin við annað en að þrífa og ef barnaverndarnefnd kæmi heim til mín núna yrði ég líklega svipt forræði. Nei ég segi svona, en samt. Ég fúnkera bara ekki í svona rusli.

Var að spá í því hvað ég myndi outsorsa fleira ef ég gæti og upp í hugan kemur strax matarinnkaup. Alveg myndi ég outsorsa það án þess að blikka auga, ógeðslega leiðinlegt. Myndi kannski fara 1x í viku að kaupa það sem er skemmtilegt, góða matinn og allt það. Hitt; klósettpappír, sjampó, smjör, brauð og mjólk.. ógeðslega boring og ekkert sem er ófyrirsjáanlegt í því dæmi.

Það sem ég myndi ekki outsorsa er matseld því mér finnst actually gaman að elda.

Mig bráðvantar tips frá fólki sem er að kaupa þrif heim til sín. Getur einhver mælt með einhverjum? Ég þarf að fá manneskju 2x í mánuði, helst á fimmtudögum fyrir pabbahelgar. Endilega sendið mér póst á anna hjá anna.is ef þið eruð með nafn og númer fyrir mig.

I need this.


| anna | 11:04 |
comments

Ef þú finnur hreindýr þá láttu mig vita. Nóg verkefni heima hjá mér líka.

Nr. 1 | posted by: Eva | 7.03.2007 | 9:15:55 | [+] |

Sko, ég hef sagt það áður, og segi það aftur.

Ég er ekki fylgjandi þrælahaldi.

En...

Það eiga allir að eiga eina spænska/mexíkóska sem svarar nafninu Maria og sér um mat og hreinlæti.

Það eiga allir að eiga einn svartan Kunta Kinte sem sér um garðinn og viðhald á húsinu.

Og..

Það eiga allir að eiga einn breskan James sem sér um persónuleg málefni.

Það er eina leiðin til að hafa nægan tíma til að vera til.

Nr. 2 | posted by: Þór | 7.03.2007 | 11:38:17 | [+] |

Þór, Þór, Þór. Hver þrífur fyrir Maríu, slær blettinn fyrir hr.Kinte, veitir James sálgæslu?

Ég var nú svo rugluð að láta mig dreyma um "stúlku" sem gæti komið heim til mín aðra hverja viku og þrifið gólf og þurrkað af, mér sýnist það líkjast þínum draumi Anna. Ég fékk nefnilega smjörþefinn af slíku þegar ég átti tvíburana mína og fékk senda heimilishjálp í heil 3 skipti frekar en 4 frá borginni skömmu eftir. Ég veit nú einnig allt um það hvað stúdínur geta verið röskar til verka hafandi sjálf verið í þessu draumadjobbi með námi. Það var í þá daga. Svo fékk ég eina "stúlku" fyrir kannski tæpu ári. Ég rak hana fljótt því mér fannst þetta svo illa unnið hjá henni, taumar á plastparketinu eftir tuskuna etc. Þá "stúlku" fann ég í gegnum vin minn. Draumurinn búinn.

Æ, ég veit ekki af hverju ég er að skrifa þetta komment, það er ekki eins og ég geti eitthvað hjálpað þér really sad
En það er stór hópur fólks í þessum pælingum. Það verður sennilega orðið eitt af viðmiðunum þegar fátækt er reiknuð út eftir nokkur ár, hvort viðkomandi hafi efni á heimilishjálp.

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 8.03.2007 | 1:03:32 | [+] |

Miniyou hefur svar. Andri getur vitnað fyrir því að ég er miniútgáfa af þér, ertu ekki annars yfir 170 á hæð? Hún Anna þrífur heima hjá mér, no kidding og hún er æði. Tékkaðu á henni: Anna 662-0120

Nr. 4 | posted by: Hildur | 10.03.2007 | 22:42:04 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web