www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekkert rugl
Laugardagur, 24. mars 2007

Hitti strák frá Landsbankanum í gær og við fórum að tala um hvaða banki rúlar á Íslandi. Stuttu síðar var okkur vísað út af Holtinu fyrir slagsmál.

Djöfull var það hressandi.

Þar sem það kom ekkert concret útúr þessu vorum við að pæla í að hittast aftur í gryfjunni við sal þrjú í Háskólabíói annað kvöld. Maður verður að halda sér í formi.

Veit ekki alveg klukkan hvað, ætlum að horfa á mynd fyrst. En þegar hún er búin, þá ætlum við að gera útum þetta mál.


| anna | 9:49 |
comments

Ástin er yndisleg melodramatic

Nr. 1 | posted by: Andri.dk | 24.03.2007 | 12:11:09 | [+] |

Klassískt. Byrjar sem samanburður á útibúafjölda, og áður en þið vissuð af voruð þið farin að rífast um kaupréttarsamninga, bónusa og ívilnanir. Endar svo í slagsmálum yfir skattagildrum og millibankavöxtum. Bankafólk... melodramatic

Nr. 2 | posted by: DonPedro | 24.03.2007 | 12:16:54 | [+] |

bankarnir eru fullir af villidýrum

Nr. 3 | posted by: baun | 24.03.2007 | 12:47:36 | [+] |

Close Pedró en ekki rétt. Það var lífeyrissparnaður og samsetning á myntkörfum í lánum sem olli sprengingunni.

Andri. Ást? Ég kem af fjöllum.

Baun. Ég er búin að gera merka uppgötvun sem skýrir af hverju karlmenn eru oftar í stjórnunarstöðum en konur.

Það virðast öll deilumál, t.d. á milli deilda og í stjórn, leyst með því að fara í slagsmál - a.m.k. hjá stærri fyrirtækjum. Ég hafði ekki hugmynd um þetta en svona er það víst búið að vera öldum saman og útum allan heim. Menn fara í vinnuferðir til útlanda og gera lítið annað en að svoleiðis lumbra á hvorum öðrum þangað til einn stendur uppi sem sigurvegari og þá ræður hann öllu. Þannig eru reglurnar. Það eru alveg til konur sem kunna þetta en þær eru ekki margar sem eru að fíla sig en þar sem ég er nýbyrjuð fannst mér rétt að skorast ekki undan.

Maður má bara alls ekki slá í andlitið á andstæðingi sínum. "Alltaf að lemja í jakkafötin", sögðu strákarnir áður en ég fór á fyrsta deildarfundinn. Sem leystist að sjálfsögðu upp í slagsmál.

Mér finnst þetta bara hressandi.

Nr. 4 | posted by: anna | 24.03.2007 | 17:03:06 | [+] |

Iss. Mínar höfuðstöðvar eru miklu flottari en þínar. Og passaðu að ég slíti ekki af þér blómið. 0

Nr. 5 | posted by: Miss G | 24.03.2007 | 19:00:47 | [+] |

Ertu að segja að þú viljir slást? toungue

Nr. 6 | posted by: anna | 24.03.2007 | 19:05:45 | [+] |

0

PS. toungue

Nr. 7 | posted by: Miss G | 24.03.2007 | 20:43:48 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web