www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Andflagð
Fimmtudagur, 15. mars 2007

Í dag sagði samstarfsmaður minn við mig "Þú ert andflagð undir fögru skinni"

Mér fannst það ekkert smá sætt.

Börnin eru að taka því mjög illa að ég sé að fá mér mannskju til að þrífa. Einkasonurinn, sem er alltaf í toppformi, sagði að það gengi ekkert upp að fá "cleaning lady".

Segir: "Þá verð ég bara eins og Buster sem heldur að Lupe (hreingerningakonan í arrested development) eigi heima í eldhúsinu!"

Hann hræðist að hann verði eins og Buster ef við fáum manneskju til að þrífa. Ég er búin að útskýra fyrir honum að hún komi ekki daglega og muni ekki eiga heima í eldhúsinu. "Ég vil ekki verða eins og Buster mamma!"

Hann þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því, ég kem til með að leggja mikla áherslu á að börnin mín flytji að heiman fyrir fimmtugt og verði sjálfbjarga. Mér finnst það hluti af uppeldinu.

Hann var samt ekki af baki dottinn. Kom áðan. "Mamma! Við þurfum ekkert að fá okkur eitthvað cleaning lady eins og bunch of loosers, við getum vel gert þetta sjálf!"

Ég spurði: "Af hverju þrífur þú þá ekki baðherbergið snöggvast?"

Hann var nú ekki aaalveg jafn hress þegar hann fékk þessa spurningu.

Það hefur ótvíræða kosti að outsorsa þrif. Bæði er þetta framkvæmt þegar ég er ekki heima og - ég þarf ekki að búa með þeim sem ég kvarta í ef þetta er ekki vel gert.

Mér finnst það best.

Þráðlaust net er up and running og ný tengin sem blows my mind. Samt finnst mér best að sitja í ógeðslega töff skrifborðsstólnum mínum við borðtölvuna. I'm a creature of habit - auk þess er borðtölvan algjörlega central íbúðinni og ég sný baki í allt draslið - getur ekki tapað.

Og fyrir þá sem eru algjörlega clueless þá eru takkar að gera rosalegt comeback.

Toggle_Switch_and_Rocker_Switch.png

Það er allt að gerast á anna.is


| anna | 17:19 |
comments

Takkaklám!

Minni á að ég á einn og óstuddur flottasta takkatæki á Íslandi, en fagna allri samkeppni, svo framarlega sem hún skyggir ekki á mig. colgate

Nr. 1 | posted by: DonPedro | 15.03.2007 | 20:45:13 | [+] |

Oh ég hef einmitt séð takkana þína og DAUÐöfunda þig af þeim.

Ég gerði mér enga grein fyrir hvað þetta er mikill fetish hjá mér fyrr en ég kom í búðina Íhlutir í Skipholtinu. Það þurfti að henda mér út við lokun, þeir eru með svona display á afgreiðsluborðinu. Fullt af tökkum!

Það skyggir náttúrlega ekkert á þig. Það á engin eins flotta takkagræju og þú. Engin.

Nr. 2 | posted by: anna | 15.03.2007 | 20:50:15 | [+] |

mig langar að fara að þínu dæmi og outsourcea þrifin mín. En ætli það nokkuð, í bili... silent

Nr. 3 | posted by: hildigunnur | 15.03.2007 | 21:26:08 | [+] |

Vildi að ég væri takkagræja. Líf mitt væri mun auðveldara, engin þörf á Jesú eða hjónabandsráðgjafa. Hvað þá heilara sour

Nr. 4 | posted by: Guðrún | 15.03.2007 | 21:36:25 | [+] |

Toggle takkar eru yndislegir. Eitt af markmiðum mínum í lífinu er að eiga GT sportbíl sem hefur mælaborð með fullt af toggle tökkum cool

Nr. 5 | posted by: Kalli | 15.03.2007 | 21:49:24 | [+] |

Þetta er allt að koma aftur. Snertiskjáir og þannig rugl. Eftir tíu ár verður það bara out.

Takkar eru the shit.

Nr. 6 | posted by: anna | 15.03.2007 | 22:06:34 | [+] |

Anna the Antihag?

Bane to hags everywhere!

Nr. 7 | posted by: Bastarður Víkinga | 16.03.2007 | 11:40:21 | [+] |

Eitt sinn vann ég í banka, og í fyrstu vikunni minni sat ég við skrifborðið með hendurnar undir borðinu að lesa, og finn þá annars hugar að það er einhver takki þarna. Ýti að sjálfsögðu. Síðan þegar lögreglan er komin og gengur á milli allra borða hef ég bara ekki clue, ekki að tengja hehehe. clown

Nr. 8 | posted by: Guðrún | 16.03.2007 | 13:16:17 | [+] |

Mesti lúxus í heimi að fá einhvern til að þrífa. Mæli svo sannarlega með þvi.

Nr. 9 | posted by: Lára | 16.03.2007 | 18:55:29 | [+] |

Já þetta er sko mesti lúxus í heimi! 0

Helvíti ertu flott á takkanum Guðrún wink

Nr. 10 | posted by: anna | 16.03.2007 | 19:49:40 | [+] |

Ég sakna Arrested Development. Gob by far uppáhalds characterinn.

Nr. 11 | posted by: Andri.dk | 17.03.2007 | 10:57:28 | [+] |

"Still.. where did the lighter fluid come from?"

Nr. 12 | posted by: anna | 17.03.2007 | 12:19:50 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web