www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það sem ég hugsa um á leiðinni heim úr vinnunni
Föstudagur, 02. mars 2007

Þegar ég var lítil horfði ég á Drakúlamyndir og fannst Drakúla alveg æðislegur. Bara að horfa á hann, augun í honum. Ohhh... Þegar ég hugsa útí það.. er hann líklega fyrsti illilegi, serious og professional maðurinn sem ég fell fyrir um ævina.

Þegar Bram Stoker's Drakúla kom í bíó varð ég fyrir rosalegum vonbrigðum þegar Drakúla breytti sér í eitthvað geimveruskrímsli til að hræða nærstadda. Þvílíkt og annað eins turn-off. Drakúla á ekki að þurfa að gera svona rugl hluti til að vera in control. Nærvera hans á að vera nóg.

Eiginlega má segja að þetta sé skýringin á því af hverju ég hef aldrei verið spennt fyrir að prófa BDSM. Fyrir mér er BDSM eins og Drakúla í geimveru-skrímsla-gervi. Hallærislegt.

Það er alveg hægt að leika power leiki og menn sem geta gert það með augnarráðinu einu saman.. úff.

Veit einhver hérna um símann hjá Drakúla eða hvar hann heldur sig þessa dagana? Ég er að fara á árshátíð og veit að hann á pottþétt rétta outfittið sem passar ógeðslega vel við kjólinn sem ég fékk frá útlöndum um daginn.

Dem hvað við myndum vera flott par.


| anna | 16:57 |
comments

Svona pælingar í umferðinni eru skerí. Þú átt að hafa hugann við aksturinn. Annars getur farið illa drunk

Nr. 1 | posted by: alanhudson | 2.03.2007 | 22:14:15 | [+] |

Hvað heitir aftur þarna fyrrverandi alþingismaður sem vinnur núna hjá Landsvirkjun? Þegar ég var lítil og sá hann í sjónvarpinu þá fannst mér hann alltaf líta út eins og Drakúla.

Nr. 2 | posted by: Hulda | 2.03.2007 | 22:21:36 | [+] |

Skil aldrei hvers vegna Drakúla og aðrar vampírur eru hafðar dökkhærðar, demónískustu dúddarnir eru ljóshærðir ... er það ekki happy

Nr. 3 | posted by: Hugz | 2.03.2007 | 22:31:49 | [+] |

Friðrik Sophusson colgate

Nr. 4 | posted by: OK | 2.03.2007 | 22:34:18 | [+] |

Ég veit alveg hvar Drakúla heldur sig þessa dagana, en þú vilt ekki hitta hann, það er kolrangur misskilningur hjá þér Anna, byggður á fornri en löngu fölnaðri frægð Vlads gamla greifa. Þið yrðuð ekki flott par, believe me. Hitti kallinn á dögunum, hálfan ofan í rauðvínsglasi af ódýrara taginu. Hann er löngu búinn að venja sig af hvítum, grönnum meyjahálsum og sláandi, iðandi slagæðum sem liggja í freistandi hlykkjum frá viðkvæmri öxl til fíngerðs eyra. "Too much hazzle," var svarið þegar ég spurði hvers vegna. Svo ropaði hann og fór að pússa gleraugun.
Hann er einfaldlega orðinn gamall (já, þeir ódauðlegu eldast líka) og slappur kallinn, og kom sér bara fyrir í þægilegri innivinnu, er orðinn næturvörður í blóðbanka (í Danmörku auðvitað, hvar annars staðar) og slafrar í sig nokkrum pokum á nóttu, skríður svo heim í kistuna sína á Austurbrú í morgunsárið, mettur og feitur, með blóðbletti niður eftir doppóttu bindinu sem nær ekki einu sinni að fela ljósbláa nærbolinn sem glittir í milli talna á grænni skyrtunni - sem teygist milli talna yfir velmegunarbumbu elliáranna. Hann var gugginn og grár, kallinn, sveittur, feitur og voðalega sorrí að sjá, þótt hann ætti fríhelgi - og ekkert eftir af grimmdinni, kúlinu, dáleiðandi augnaráðinu. Neibb, bara glaseygður gamall hlunkur í terlínbuxum (ég sver það) og Dressmann-jakka, á þokkalegum launum frá danska ríkinu, blikkandi hálfsextuga bardömuna á milli hiksta. Hún hunsaði hann algjörlega.
Þetta var virkilega sad.

Nr. 5 | posted by: Tumi | 2.03.2007 | 22:35:33 | [+] |

Var ég ekki að segjaða ..
Dökkhærðir dímonar eru úti
Ljóshærðir lostavekjandi eru inni colgate

Nr. 6 | posted by: Hugz | 2.03.2007 | 22:40:35 | [+] |

Ég var alveg með samanbitnar tennur og hugaði "mér er alveg sama, mér er alveg sama" á meðan ég las þessa HRYLLILEGU lysingu en Dressman fór með þetta. Maður í dressman fötum er einfaldlega ekki maður fyrir mig. Pedró YOU CAN NOT HOLD THIS AGAINST ME! Ég hafði þessa skoðun BG.

Grínlaust, maður dregur línuna þar og ég vil mann með smekk.

Ljóshærðir ha? Ljóshærðir lostavekjandi? Ég veit ekki um neinn þannig.

Nr. 7 | posted by: anna | 3.03.2007 | 0:42:07 | [+] |

Ertu sumsé soldið svag fyrir albínóum? what

Nr. 8 | posted by: AlanHudson | 3.03.2007 | 1:21:25 | [+] |

Anna: Spike í Buffy ?

Flest kvenfólk sem ég þekki finnst hann vera ómótstæðilegasta og flottasta fígúran í þeim þáttum.

Mér finnst hann fyndinn smile

Nr. 9 | posted by: Þór | 3.03.2007 | 1:51:36 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web