Föstudagur, 02. mars 2007
Ég kem hingað heim í mesta sakleysi í kvöld og það sem gerðist var hreint út sagt magnað. Margeir var í plastpoka við hurðina, hef ekki komist með hann lengra. Skyndilega fór pokinn að hreyfast, svo braut lítill kræklóttur fingur sér leið í gegnum plastið.
Á þriðja degi.. REIS HANN UPP.
Mér finnst eins og ég þurfi að segja þeim frá þessu í vatíkaninu. Ætli það þyki siðlaust að bjóða þeim hann til sölu?
Hvað?