Þriðjudagur, 27. mars 2007
Ég var að finna fyrstu söguna mína. Skrifaði hana í bandaríkjunum þegar ég var þar. Fimm handskrifaðar blaðsíður. Ferlega sæt, hryllingssaga. Aðalsöguhetjan er karlmaður.
Fór að pæla.. söguhetjurnar mínar eru oftast karlmenn og ég sé oftast inní höfuðið á þeim, ekki kvenpersónunum. Það er kannski ekkert skrítið þannig lagað þegar ég hugsa útí það. Ég hef aldrei skilið konur.
Þangað til núna.