Mánudagur, 19. febrúar 2007
Ég er búin að eyða síðustu vikum í frantik leit að fötum fyrir reunionið sem er næstu helgi. Hef ekkert geta bloggað útaf þessu. Nú er reunionið um næstu helgi og ég er ekki ennþá búin að get my shit together!
Og hvað hef ég verið að gera þar fyrir utan? Ha? Vinna. Sem er náttúrlega tómt rugl þegar ég er undir svona mikilli pressu.
Ég get valið að fara í fallegum en plain svörtum kjól - þið vitið, "litla svarta kjólnum". Eða klikkaða svarta kjólnum sem ég keypti mér nýlega. Hann er ofboðslega fallegur en of.. formal. Ég gæti farið í dragt, pilsi..
Grínlaust, þá hef ég actually velt þessu soldið fyrir mér vegna þess að ég er með sjaldgæfan talent. Ég er alltaf annaðhvort over eða underdressed. Aldrei "just right". Og það stefnir hraðbyr í að ég verði underdressed á laugardaginn því ég kemst alltaf að sömu niðurstöðu í þessu máli: gallabuxur.
Annars finnst mér gallabuxur alltaf vera eins og fríríki eða twilight zone. Öll náttúrulögmál sem gilda um önnur föt hætta að gilda þegar gallabuxur eru annars vegar. Þetta er phenomenon.
Ekki geri ég sjálfri mér að fara í pilsi á þetta gigg. Það er ekkert smá scary að nota pils. Stundum þegar ég stend upp í vinnunni finnst mér eins og ég hafi gleymt að klæða mig um morguninn og sé ekki í neinu fyrir neðan mitti af því pilsið sem ég er í er svo létt og einhvernvegin.. er eins og það sé ekki þarna.
Ég þarf áfallahjálp mörgum sinnum á dag þegar ég fer í pilsi í vinnuna en ég hef bara gott af því. Lifi allt of áfallalitlu lífi, enda ógift. Ef ég hætti að höndla pressuna get ég alltaf farið að drekka. Annars er ég að hugsa verulega vel um mig þessa dagana. Tek lýsi á morgnanna og fjölvítamín. C-vítamín, kalsíum, kalk, járn, husk, og þarna.. dropa... fokk.. æ man ekki hvað þeir heita en ég fékk þá hjá konu í bláum kjól sem sveif innum gluggann hjá mér í síðustu viku og sagðist vera "my dreary godmother" - ég skildi hana rosalega illa, held að hún hafi verið að drekka, nema hún lét mig fá ógeðslega töff dropa sem eiga að gera það að verkum að maður hættir að eldast og verður ógeðslega ríkur.
Ég trúi nú ekki hverju sem er og ekki alveg fædd í gær.
-en svo fattaði ég að það er alveg nóg að verða ógeðslega ríkur, þá getur maður keypt æsku í formi lýtarlækninga!
Vúhú!
Fuck this. Ég fer í gallabuxum. Það er ekkert smá basic. Þeir sem hafa eitthvað útá það að setja geta hoppað uppí byrgið á sér.