www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
The road is long
Sunnudagur, 25. febrúar 2007

Skrítið, er eina orðið sem kemur uppí hugann. Það var skrítið að hitta allt þetta fólk í kvöld. Fólk sem ég eyddi stórum hluta æskunnar með í skóla, fólk sem ég hef ekki séð í rosalega mörg ár.

Mest þótti mér skrítið að hitta *censored* eftir allan þennan tíma. Við vorum ekki saman í skóla heldur nágrannar og mér fannst hann alltaf alveg rosalega sætur en það var aldrei neitt á milli okkar. Hann hefur .. karlmannast, ef svo má að orði komast. Ekki orðinn kall, heldur karlmaður. There is a difference. Reyndar voru mjög fáir "kallar" sem mættu á Nordica í kvöld. Alveg ótrúlega fáir í raun miðað við hvað það eru margir kallar out there á þessum aldri og það er rétt að taka það skýrt fram að teinótt jakkaföt gera menn ekki að köllum. Ef þú ert að lesa, þá máttu vita að þú ert ljósár frá því að vera kall.

Mér fannst allir vera eiginlega alveg eins og þeir voru í gamla daga, sumar stelpurnar hafa virkilega blómstrað og eru algjör knockout. Sumir strákarnir líka. Flestir strákarnir eru líka orðnir menn. Hættir að vera í þessum strákapakka og verulega gaman að tala við þá. Fannst svo vænt um þegar einn af þeim kom til mín og gerði upp ákveðið mál. Það var reyndar aldrei neitt mál þannig lagað, hefði ég vitað hvað hann var að hugsa hefði ég talað við hann fyrir löngu þá hefði hann vitað að það eru no hard feelings mín megin svo það má segja að ég hafi endurheimt gamlan vin.

*censored* er óvirkur alkóhólisti, fór alla leið í ruglinu en kom til baka. Búinn að vera edrú í sjö ár. Hann var svo hissa að sjá mig, hélt að ég væri ekki á landinu, ályktaði það vegna þess að hann hefur ekki séð mig í sautján ár. Sagði að ég hefði nákvæmlega ekkert breyst - nema ég væri orðin "kvenlegri". Hehe, ég veit hvað hann átti við og þetta er rétt hjá honum, þó ekki væri nema bara vegna þess að ég er með sítt hár. Satt að segja er hann eina manneskjan úr hinum skólunum sem mig langaði að hitta þarna í kvöld. Ég vildi óska þess að ég hefði haldið sambandi við hann í gegnum árin. Eyddi ófáum stundum með honum úti í götu að kjafta á meðan hann þvoði bíl pabba síns þegar ég var með svo mikið ofnæmi fyrir kettinum hennar Júlíu að ég varð að fara út.

Þó ég hafi ekki breyst mikið í útliti þannig lagað hef ég samt einmitt breyst mikið. Inside out og án aðstoðar lýtalækna. Tom Willis togaði pínulítið í hárið á mér til að athuga hvort ég væri með hárkollu því hárið á mér var slétt. Mér fannst það eiginlega soldið sætt. Tommalegt. Mikið rosalega var þetta gaman.

Eftir kvöldið velti ég fyrir mér hvernig getur stundum farið fyrir fólki sem er gott að upplagi. *censored* er nefnilega verulega góður strákur að upplagi, sagði að þetta tímabil lífs hans þegar hann var í ruglinu hefði nú ekki verið mjög fallegt og hann hefði ekki gert fallega hluti. Á meðan hann sagði þetta horfði ég í augun á honum og á bak við þau var bara hlýja og einlægni. Við vorum ekki á trúnaðnum þannig lagað, ég hitti hann ca 2 mín eftir að ég mætti á ballið. Hann á fjölskyldu í dag, eitt barn og tvö sem hann tók að sér. Margir strákar þarna sem hafa tekið að sér börn annarra manna, kom mér satt að segja á óvart.

Ef ég þurfti á staðfestingu á því að karlmenn eru ekki fávitar þá fékk ég hana í kvöld. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verður hinsvegar meira og meira varið í þá með árunum. Við erum náttúrlega hætt að vera krakkar, lífsreyndari. Búin að eignast börn sjálf og fjölskyldu. Hætt að hugsa eingöngu um eigið rassgat. Sumir þroskast auðvitað aldrei, var alveg slatti af þannig fólki líka þarna, ég þekkti bara mjög fáa af þeim.

Ég er í skrítnu skapi. Rosalega skrítið kvöld. Meiriháttar gaman og vel heppnað í alla staði. Mikið af fólki þarna sem mér þykir vænt um, og einhverra hluta vegna er ég að hlusta á þetta.

Takk fyrir vangadansinn.

Gott að finna karlmann halda utanum sig.


| anna | 4:01 |
comments

Elsku darling frænka
Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld með endalausum minningum. Frábærar sögur og skemmtilegt fólk. Og já ég er sammála, flestir litu glæsilega út og voru mun þroskaðri en samt einhvernveginn alveg eins! Svolítið eins og tíminn hefði staðið í stað.
Upprifjanir eins og hver var skotin í hverjum voru bara æðislegar og ef ætti að verðlauna minningarnar fær Kappa mitt atkvæði.
Að sjálfsögðu er ég raddlaus eftir söng enda var ég ekki í mínu besta raddformi fyrir kvöldið en lét það nú alls ekki halda mér frá dansgólfinu og syngja með U2, Loverboy, Duran og öllum hinum frábæru tjúttlögunum.
Ég er strax farin að hlakka til næsta reunions sem ég vona að verði haldin eftir fimm ár en ekki tíu!

Nr. 1 | posted by: Eddið | 25.02.2007 | 12:39:21 | [+] |

Ég held að allir sem voru þarna í gær séu sammála um að halda þetta eftir fimm ár næst.

"Kappa móment" var náttúrlega bara snilld, ég fékk hreinlega í magann að hlusta á hann B. Þvílíkir persónutöfrar samankomnir í einum manni, hefðir átt að SJÁ manninn á dansgólfinu þegar við vorum komin niður í bæ. Algjör snillingur. Ég mun gera Kappa skil hérna innan skamms!

Takk fyrir síðast. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 25.02.2007 | 13:49:03 | [+] |

Þú ert æðislegur bloggari!

Stundum verður maður bara að koma svona hrósum að.

Nr. 3 | posted by: Einar Örn | 25.02.2007 | 14:51:02 | [+] |

Þetta var með betri pistlum sem ég hef lesið hjá þér. Eins og kafli úr góðri bók. Fannst ég vera að horfa á e-hja reunion bíómynd með John Cusack í aðalhlutverki.

kv, tobs

Nr. 4 | posted by: Tobbi G. | 25.02.2007 | 14:54:54 | [+] |

Maður fer bara hjá sér, takk. smile

Nr. 5 | posted by: anna | 25.02.2007 | 17:03:29 | [+] |

Gott reunion hefur góð áhrif til lengdar....

Nr. 6 | posted by: Eddið | 25.02.2007 | 19:38:53 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web