www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
In his presence
Sunnudagur, 18. febrúar 2007

hey_jude.jpg

Þessa mynd tók vinkona mín á föstudagskvöld á Domo þegar ég sá Jude Law í fyrsta skipti in person. Ef þú ert karlmaður og ég horfi svona á þig, finnst mér þú líklega soldið flottur. Seinna um kvöldið áttum við móment Jude og ég. Hann horfði í augun á mér í smá stund, leit undan og svo aftur á mig. Mér finnst ólíklegt að hann hafi vitað að þarna var kona sem hefur haldið því blákalt fram á heimasíðunni sinni að við séum par og að ég þekki hann persónulega. Ég var ekkert að segja honum frá því og þó ég gæti leikið mér og bullað um að hann hafi verið hér á mínum vegum langar mig ekki til þess. Hef sagt það áður, þetta sem var á milli okkar er búið. Hér, a.m.k.

Ég hef verið mjög upptekin undanfarnar vikur sem skýrir litla viðveru mína á þessum vettvangi. Guð tók sér ekki nema einn dag í að skapa manninn - minnir mig - ég þurfti aðeins lengri tíma. Bæði var ég að skapa flóknari lífveru, konu, auk þess gerði ég það samhliða annarri vinnu. Já og Margeir. Hann getur búið sig undir að deyja.

Hvernig finnst ykkur nýja klippingin mín annars?


| anna | 11:18 |
comments

Hvað ætli það hafi tekið Guð langan tíma að skapa Margeir? 10 mín yfir sjónvarpinu eða 5 mín á meðan hann var í símanum?

Nr. 1 | posted by: Andri | 18.02.2007 | 12:26:00 | [+] |

Hann hlýtur að hafa verið á kamrinum þegar hann framkvæmdi þetta voðaverk.

Nr. 2 | posted by: anna | 18.02.2007 | 12:59:24 | [+] |

svaka ertu flott með nýju klippinguna wave

Nr. 3 | posted by: baun | 18.02.2007 | 14:35:36 | [+] |

Velkomin aftur, og til hamingju með klippinguna wave

Nr. 4 | posted by: Guðrún | 18.02.2007 | 16:09:38 | [+] |

Fyrir hönd Thomas Knoll og risastórs hóps hugvitsmanna og kvenna sem standa á bak við forritið Adobe Photoshop, þakka ég þér fyrir smekklega notkun á filterum sem allt of fáir nýta sér evil

Velkomin aftur, Við erum búin að sakna þín...

Nr. 5 | posted by: DonPedro | 18.02.2007 | 16:37:23 | [+] |

Kvitt fyrir kíkki eftir svakalega langt blogglestrarhlé. Flott klipping.

Nr. 6 | posted by: Unnur | 18.02.2007 | 16:59:08 | [+] |

Oh takk, takk!

Ég hef saknað ykkar líka, mikið.

Mér finnst þessi mynd ferlega vel heppnuð, og til gamans: 2 up

Photoshop fricking rules. cool

Nr. 7 | posted by: anna | 18.02.2007 | 17:35:12 | [+] |

Gvuð hvað ég er fegin að þú ert komin aftur Anna...og það sprell-lifandi...sem betur fer! Og svona líka sæt með nýju klippinguna! smile

Nr. 8 | posted by: Ása | 18.02.2007 | 18:35:48 | [+] |

Er hægt að fá svona real life Photoshop sem hægt er að setja upp sem face screan svona úti á labbinu? really sad

Nr. 9 | posted by: lindablinda | 18.02.2007 | 19:56:12 | [+] |

Linda: það heitir "áfengi".

Nr. 10 | posted by: Elías | 18.02.2007 | 20:58:38 | [+] |

Nákvæmlega!

Nr. 11 | posted by: anna | 18.02.2007 | 21:01:44 | [+] |

Elías - Þarf ég að vera full eða þeir sem horfa á mig? doubt

Nr. 12 | posted by: lindablinda | 18.02.2007 | 21:03:49 | [+] |

Æ, en gaman að sjá þig! Og svona sæta með klippinguna happy

Ég er ekki hissa að Jude hafi litið tvisvar í áttina til þín wink

Á svo að vera dugleg að blogga núna? Þú verður enga stund að jafna þig þótt þú myrðir Margeir.

Nr. 13 | posted by: Atviksorða-Anna | 18.02.2007 | 21:49:32 | [+] |

Suddalegur svipur á þessari mynd ég er ekkert hissa að hann hafi kíkt oftar en einy sinni.
Geggjuð klipping, ég er að reyna að átta mig á hverja þú minnir mig núna... it will come to me happy

Nr. 14 | posted by: Elín | 19.02.2007 | 7:52:27 | [+] |

"Þarna er HANN ! Hvaða glyðra er með honum ? Barnapían kannski ? Best að halda þessum svip ef hann skyldi líta hingað. Oj þetta er hún þarna leikaragæra gnasher, er víst alltaf hangandi utaní celebum sem kom hingað. Það er frekar þreytandi að halda þessum svip, neðri vörin er að dofna drunk. Hann er að skanna staðinn, má ekki missa svipinn á ögurstundu ! Hún var ömurleg í Footloose, öömuuurleg ..."

Velkomin aftur annars wave

Nr. 15 | posted by: Hugz | 19.02.2007 | 9:03:11 | [+] |

Elías, það er heldur tricky að hafa alla ölvaða í kringum sig. Maður er kannski ekki í rétta félagsskapnum.

Nr. 16 | posted by: Andri | 19.02.2007 | 9:08:06 | [+] |

Uss nei Hugi, ég held þetta sé bara plott hjá Önnu að fá leikkonu til að leika sig og athuga hvernig djúdinn er í raun og veru. Þess vegna vildi leikkonan ekki tjá sig við fjölmiðla... eina sem hún átti að gera var að gefa Önnu skýrslu cool

Nr. 17 | posted by: Sigga | 19.02.2007 | 10:14:32 | [+] |

Come on you guys, hvað þarf ég að segja þetta oft?

It's over!

Mig langar ekki í karlmann. Hvorki Jude Law né aðra. Seinna mun ég líklega líta til baka og hugsa um þetta tímabil sem "bitru árin".

Nr. 18 | posted by: anna | 19.02.2007 | 16:48:16 | [+] |

Ví ví ví - uppáhaldspenninn minn snýr aftur og ég get tekið gleði mína aftur wave

Nr. 19 | posted by: Simmi | 19.02.2007 | 23:56:48 | [+] |

aahh, gott að sjá þig aftur colgate

Nr. 20 | posted by: hildigunnur | 21.02.2007 | 20:53:46 | [+] |

svaka flott angel

Nr. 21 | posted by: Anna A. | 24.02.2007 | 14:39:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web