Sunnudagur, 25. febrúar 2007
Það var bara ein mynd tekin af mér og blaðamanninum og hún var tekin heima hjá Tóta áður en við fórum á Nordica. Ég verð að vera sammála Siggu, Aldurinn fer vel með mig - ennþá. Tóta líka.

Neðri myndin er af mér og flugmanninum í bekknum. Hann var búinn að fara þvílíkt á kostunum allt kvöldið og mig langaði í mynd af okkur saman áður en við fórum niður í bæ, hann var nú ekki lengi að redda því og tók þessa á símann sinn.

Erum við töff -eða töff!
Við þurftum ekki einu sinni að reyna.
Í matnum lágu allir í hláturskrampa í hvert sinn sem þessi maður opnaði munninn. Mér var hreinlega orðið illt á endanum. Einn af strákunum spurði hvort hann væri ekki hrikalegur töffari með kaskeitið, hann var ekki lengi að svara: "Jú vá maður" svo teygði hann sig í innanávasann á jakkanum og hélt áfram "ég er með mynd.."
Hann var að sjálfsögðu að fíflast í okkur.
Frábær strákur og tvímælalaust stjarna kvöldsins!