www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Drive-thru
Föstudagur, 23. febrúar 2007

Ég er búin að vera eitthvað svo tense undanfarið, hef virkilega þurft á einhverju spennulosandi að halda - svo ég kom við í lúgusjoppu á leiðinni heim úr vinnunni.

Sá sem sagði "they fuck you at the drive-thru" .. var að ljúga.


| anna | 17:40 |
comments

Mæli með heilun cool

Nr. 1 | posted by: Guðrún | 23.02.2007 | 20:04:51 | [+] |

Heilun? Hvað í veröldinni er það?

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 23.02.2007 | 21:33:47 | [+] |

Það er eitthvað svona dót sem á að koma jafnvægi á orkustöðvar og tilfinningar manns og vesen. Svona andlegt nudd. Æj ég veitiggi. En það virkar happy

Nr. 3 | posted by: Guðrún | 23.02.2007 | 21:43:28 | [+] |

Kannski stofnfrumuheilun? laughing

Nr. 4 | posted by: Kalli | 23.02.2007 | 21:56:28 | [+] |

Hvar fer ég í svona heilun? Held reyndar að ég hafi farið í svona orkustöðvastillingu einu sinni og hann fann engar stöðvar. Sagði að mig vantaði jarðtengingu. Les líklega bara bloggið..

Nr. 5 | posted by: anna | 23.02.2007 | 21:58:44 | [+] |

Æj ekki gera grín að mér. Engin stofnfrumuheilun nei, en verulega bætt skilvirkni á daglegum basis. Það er það eina sem ég þarf að vita. Fór til Guðrúnar nokkurrar Gunnarsdóttur frá Ísafirði, krúttleg kona.

Nr. 6 | posted by: Guðrún | 23.02.2007 | 22:08:56 | [+] |

Ég er ekki að gera grín að þér, það gerðist ekkert í orkuhreinsuninni minni. Líklega er ég með svona hreina orku en litla jarðtengingu.

Ég ætla að kíkja á þessa Guðrúnu, ef þú ert með síma máttu alveg senda mér hann á anna hjá anna.is smile

Nr. 7 | posted by: anna | 23.02.2007 | 22:10:50 | [+] |

Já ég veit, meinti líka Kalla með stofnfrumurnar (væri góður titill á barnaleikriti) clown
Sendi þér símann smile

Nr. 8 | posted by: Guðrún | 23.02.2007 | 22:20:32 | [+] |

Ef krúttlegar konur sjá um að heila mann þá kaupi ég alveg að þetta hljóti að vera eitthvað gagnlegt. Annars ekki.

Nr. 9 | posted by: AlanHudson | 23.02.2007 | 22:29:23 | [+] |

Já ætli krúttleikinn sé ekki lykilatriðið.

Nr. 10 | posted by: Guðrún | 23.02.2007 | 22:32:40 | [+] |

Mig er strax farið að dreyma um smá heilun.

Nr. 11 | posted by: AlanHudson | 23.02.2007 | 22:41:09 | [+] |

Perri toungue

Nr. 12 | posted by: anna | 23.02.2007 | 22:56:38 | [+] |

drunk angel

Nr. 13 | posted by: AlanHudson | 23.02.2007 | 23:21:10 | [+] |

Ætli það sé hægt að fá heilun með happy ending?

Annars er ég vottaður reikimeistari sko.

Nr. 14 | posted by: Kalli | 24.02.2007 | 0:40:39 | [+] |

Loksins. Var farinn að óttast að Glitnisbændur hefðu prjónað úr þér húmorinn. En já, þeir eru víða, lygamerðirnir, sem vekja manni væntingar en standa svo ekki undir þeim, helvískir.
Segðu mér annars, hvað gerðirðu við Margeirinn? Getur það virkilega verið að það sé hann sem heldur fyrir mér vöku næturnar langar þessa dagana með ýlfri undir myrkvuðum glugga mínum? Þangað leitar jú klárinn sem hann er kvaldastur, segja þeir. Er hann ekki hjá þér lengur? Þarf ég að fara að endurnýja duftslökkvitækin og vítissódabirgðirnar? Draga fram skóna með stáltánni? Kaupa lífrænt ræktað salathöfuð?

Nr. 15 | posted by: Tumi | 24.02.2007 | 0:51:18 | [+] |

Síðast þegar ég var heima þá fór ég í heimsókn eitt ágætt föstudagskvöld. Gestgjafarnir búa hinu megin við lækinn og af því að veðrið var ágætt þá gekk ég heim að afloknu ofáti og slúðursagnastund eins og hæfir á svona kvöldum. Á þeirri göngu varð ég óþyrmilega var við að það eru margir reikimeistarar á Íslandi. Ég held að það þurfi ekki einu sinni að beita höfðatölureglunni góðu til að giska á að við séum jafnvel á heimsmælikvarða á þessu sviði.

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 24.02.2007 | 1:19:04 | [+] |

Og þegar ég hugsa þetta betur þá rennur upp fyrir mér að margir þessara reikimeistara voru klárlega að reyna að komast í heilun.

Nr. 17 | posted by: AlanHudson | 24.02.2007 | 3:22:55 | [+] |

Ég mæli nú frekar með **** en heilun ef maður þarf að losa um spennu. Ís kemur líka til greina. angel

Nr. 18 | posted by: Eva | 24.02.2007 | 9:26:39 | [+] |

Bjór í stórfelldu magni. Slakar á og verður of þunn daginn eftir til að hafa áhyggjur af neinu öðru happy

Nr. 19 | posted by: Kalli | 24.02.2007 | 11:35:13 | [+] |

Iss Tumi. Ég á aldrei eftir að missa húmorinn. happy

Nr. 20 | posted by: anna | 24.02.2007 | 11:50:41 | [+] |

heh, fór einu sinni til svona heilunargúrús og meira kjaftæði hef ég ekki heyrt á ævi minni. Svo þóttist hann sko vita miklu betur en ég sjálf hvernig mér liði og að það væri allt í hassi heima hjá mér. He was soooooo, wrong... sour

Nr. 21 | posted by: hildigunnur | 24.02.2007 | 21:55:23 | [+] |

Maður á ekki að halda loddurum uppi. Mig langar t.d. mikið að prófa að fara til miðils en ég myndi bara sjá allt of mikið eftir peningnum hvort sem viðkomandi trúir virkilega á eigin skyggnigáfu eða er meðvitaður um svindlið.

Nr. 22 | posted by: Kalli | 25.02.2007 | 0:02:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web