www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dánarfregnir
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007

Það er mér ljúft og skylt að tilkynna að Margeir Líndal dó fyrir réttum þremur mínútum síðan. Hann dó úr harmi.

Þetta gerðist stuttu eftir að ég sagði honum að það sé búið að banna klámráðstefnunni að koma til Íslands. Ég finn nú alveg til með honum, allavega í nöglinni sem ég var að beygla áðan. Hann var búinn að safna peningum í fimm vikur fyrir aðgangseyrinum og hafa fyrir að læra nöfnin á öllum leikkonunum utanað, ásamt skálastærð og leggangadýpt. Ætlaði að kaupa sér gervisköp en það eru víst afsteypur af þremur leikkonunum í boði og hann trúði mér fyrir því að hann ætlaði að kaupa gervisköp þeirrar leikkonu sem honum fyndist hafa áhugaverðasta persónuleikann. Mér fannst þetta svo uppbyggilegt, loksins hafði Margeir eitthvað fyrir stafni á daginn annað en að fara í taugarnar á mér.

Oh well. Ég ætlaði að sjá um að stúta honum sjálf en femínistarnir tóku af mér ómakið. Ég hefði hvort sem er ekki komið þessu í verk fyrr en eftir mörg ár. Þetta grey var aldrei ofarlega á forgagnslistanum hjá mér.

Get samt ekki annað en velt fyrir mér, hver á núna að fara út með ruslið?


| anna | 23:47 |
comments

Blessað skinnið. Hann var nú ágætur blessað skinnið. Settirðu hann í sorprennuna eða er það bannað?

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 27.02.2007 | 1:46:42 | [+] |

Væri ekki ráð að salta hann niður í tunnu?

Nr. 2 | posted by: Elías | 27.02.2007 | 7:25:27 | [+] |

Er ekki blýkassi betur við hæfi? Það er mikil spilliefnahætta af svona hræjum.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 27.02.2007 | 7:35:25 | [+] |

Djöfull eruð þið ömó strákar. Margeir á skilið fallega útför á kostnað ríkisins. Hann var góður dvergur, en misskilinn.

Nr. 4 | posted by: Harpa | 27.02.2007 | 7:42:33 | [+] |

þetta eru hræðilegar fréttir. ég er miður mín weepy

Nr. 5 | posted by: baun | 27.02.2007 | 8:25:57 | [+] |

Margeir var það sem kallað er "a waste of space". Þótt hann hafi í raun tekið lítið pláss.

Nr. 6 | posted by: Miss G | 27.02.2007 | 9:06:22 | [+] |

Mig vantar húddskraut, má ég láta stoppa hann upp?

Nr. 7 | posted by: DonPedro | 27.02.2007 | 9:55:14 | [+] |

Sannarlega sorgarfréttir.
Hef verið að hugsa um að undanförnu að fá að ættleiða kvikindið þar sem heimilið er fullt af kvenfólki og manninum mínum langar mikið að eignast son. Hann hefði sjálfsagt verið honum góður faðir og kennt honum að þrífa bílskúrinn, þrífa bílana með tannbursta og jafnvel notað hann í staðinn fyrir vaskaskinn. Já Margeir og Tommi hefði átt góðar samverustundir í bílskúrnum jafnvel þótt Margeir hefði engöngu verið nothæfur til þess að þrífa byssuskaftið fyrir næstu hreindýraveiðar. Trúlega hefði hann komið að gagni sem agn fyrir villidýraveiðar í Rússlandi nema lyktin af honum virki líka fráhrindandi á aðrar skítugar skeppnur!
Megi hann hvílast í friði og skít ræfillinn

Nr. 8 | posted by: Eddið | 27.02.2007 | 14:30:05 | [+] |

Blessuð sé minning hans happy

Nr. 9 | posted by: Elín | 27.02.2007 | 14:49:58 | [+] |

Ég á nú eftir að sakna litla kvikindisins, hann var ömurlegur bloggari en skrautlegur karakter engu að síður. Veit samt ekki hvort hann átti betra skilið en að verða "cannon-fodder" feminista, og það að deyja til einskis líka.

Vona að hann fái bara gnægð kláms í framhaldslífinu án afskipta forræðishyggjumanna/-kvenna.

Nr. 10 | posted by: Andri | 27.02.2007 | 15:56:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web