Mánudagur, 26. febrúar 2007
Ég var að pikka á fullu á lyklaborðið, tala við samstarfsmann minn á msn um verkefni sem við erum að vinna. Búin að sitja allan daginn við vélina og orðin hálf þreytt þegar ég fann allt í einu heitar hendur á hálsinum á mér sem fikruðu sig rólega niður á axlir. Ég hætti að pikka. Og anda.
Samstarfsmaður minn hélt áfram að senda skilaboð á msn en ég var sem lömuð í stólnum á meðan einhver var að nudda á mér axlirnar og hálsinn.
-Og það var svo gott.
Þá heyrði ég djúpa rödd fyrir aftan mig hvísla í eyrað á mér: "settu þig á busy".
Ég hlýddi honum orðalaust.
Svo lokaði ég augunum..