Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Ég birti mynd af mér og fyrrverandi eiginmanni mínum á sunnudaginn, mynd sem var tekin heima hjá honum á laugardeginum áður en við fórum á reunionið. Í færslu á undan birti ég fleiri myndir, bæði af mér og honum.
Í kvöld frétti ég að sú spurning hafi komið upp hvort við hefðum farið heim saman eftir ballið.
Fór að hugsa um skemmtilegustu kjaftasöguna sem ég heyrði í tengslum við Kenneth Bentley ævintýrið. Ég frétti að fólk á einhverri kaffistofu útí bæ hefði verið að velta þessu fyrir sér og eftirfarandi möguleikar komu til greina:
a) Anna er líklega til
b) Þórarinn gæti verið skáldskapur
c) Ef Þórarinn er ekki skáldskapur - eru hann og Anna líklega ennþá hjón
svo
d) Þórarinn hlýtur að vera Ken
Vegna þess að það eina sem meikaði hreinlega ekkert sense í þessu öllu saman var..
.. við skulum rifja upp snöggvast að málið snérist um að útlendingur sem svarar nafninu Kenneth Bentley mætti á Ford GT með lífverði í Ford jeppa með sér, bað mig að giftast sér, teymdi mig því næst út, gaf mér sportbílinn og hvarf útí buskann. Þetta náðist á vídeó.
Kenneth Bentley er valdasjúkur geðsjúklingur.
Hann stefnir á heimsyfirráð.
Ekkert af ofangreindu þótti þessu fólki undarlegt - nei - fólk TRÚÐI EKKI AÐ ÞESSI ANNA MYNDI BJÓÐA FYRRVERANDI EIGINMANNI SÍNUM Í AFMÆLIÐ SITT.
En ég gerði það samt.
Sko! Þarna erum við - í afmælinu!

Við fórum ekki heldur saman heim eftir afmælið mitt, eins og nýja konan hans Tóta getur vitnað um því hann kynntist henni einmitt þá um nóttina.
Við skulum halda okkur við staðreyndir:
a) Anna er til.
b) Þórarinn er til.
c) Ken er ekki til - nema á www.anna.is.
d) Anna og Þórarinn eru fráskilin.
f) Anna og Þórarinn eru æskuvinir.
g) Anna og Þórarinn fara ekki heim saman eftir djamm (sjá lið d)
h) því nýja konan hans Tóta.. er ekki Anna.
j) Anna hefur ekki ennþá lært stafrófið.
And get this.. Þórarinn og nýja konan hans eru að koma í mat til Önnu og krakkana um páskana svo þær geti kynnst!
Já. Svona getur lífið nú verið alveg hreint ótrúlegt.
hehehe
Trust me. Ef ég hefði farið með einhverjum heim.. hefði ég ekki gefið mér tíma til að blogga um nóttina.
Ekki séns.