www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
1971
Laugardagur, 24. febrúar 2007

Hér er smá myndasyrpa í tilefni þess að ég er að fara á klikkað reunion í kvöld fyrir árgang 1971 across the board úr Kópavoginum. Já, ég ólst þar upp. Ekkert vera að hafa hátt um það, ok?

Að sjálfsögðu mun ég mæta á svæðið með fyrrverandi bekkjafélaga og eiginmanni, lénsherra badabing.is.

Við stefnum á að verða laaaang flottasta fráskilda parið á svæðinu, þ.e. parið sem var saman í bekk í barnaskóla og skilið við hvort annað.



Hér er ég 10 ára í Snælandsskóla. Ógeðslega töff fuglar þarna á bakvið mig.



Tóti í símanum í partíi sem hann hélt 14 ára. Duran í algleymi.



15 ára með hrikalega stóra eyrnalokka og ógeðslega töff sólgleraugu. Á hausnum.

Ekki á föstu.



16 ára í Bandaríkjunum '88



16 ára, passamyndin sem var í ökuskírteininu hans Tóta.



Tóti í Snælandssjoppunni þegar hann hefur verið ca 17 ára. Töffari. Takið eftir sylgjunni. Þú átt þessa gráu ennþá, er það ekki?



Tvítug í partíi stuttu eftir að við byrjuðum saman.



25 ára á síðasta reunioni árið 1997.



Á leiðinni á síðasta reunion 1997. 25 ára gömul.


| anna | 11:18 |
comments

Jæja! Að morgni reuniondags er þetta af veikindunum að segja: Ég hef verið andsetin af fallna englinum Mr. Flensíus Von Horþrótmucusítis síðast liðna viku. Eftir góða ráðgjöf frá hinum persónuleika mínum Fraulein Eddfríður Nurse deNightingale hef ég fengið mikla aðstoð særingarmannanna dr. Theraflu Von Novartis og mr. Parkódínus Ibumetino Actavious sr. og grasafræðingsins og greifans af Herbalæf dr. Defens Bestus P.hd. Í sameiningu hefur þeim tekist að bægja að mestu hinum illa anda úr mér og gert mig nokkuð rólfæra fyrir hófið í kvöld. Nú hef ég sinnt móðurhlutverkinu og sungið afmælissöngin fyrir frumburðinn og fært henni gallabuxur í afmælisgjöf. Bakað eina marens fyrir morgundaginn (því augljóslega þarf að fresta afmælisboði þegar reunion ber upp á sama dag!) og skipt á einni kúkableiu örverpisins. Nú getur eiginmaðurinn tekið við og ég farið að lakka neglurnar því nú eru aðeins fimm tímar til stefnu!!
Sjáumst spræk í kvöld....l

Nr. 1 | posted by: Eddið | 24.02.2007 | 13:38:58 | [+] |

Kúkableiu örverpisins? Áttu við Margeir eðe hefurðu fætt barn síðan á bolludag doubt

Nr. 2 | posted by: Eva | 24.02.2007 | 14:38:18 | [+] |

Újé beibí! Hlakka ekkert lítið til að hitta þig!


THIS IS PLANET EARTH!

Nr. 3 | posted by: anna | 24.02.2007 | 16:01:38 | [+] |

The Reflex....

cool

Livin´on a prayer

Getur bara orðið gaman eða geðveikt gaman....
colgate

Nr. 4 | posted by: Eddið | 24.02.2007 | 16:31:35 | [+] |

góða skemmtun colgate

Nr. 5 | posted by: baun | 24.02.2007 | 16:37:33 | [+] |

Yndislega krúttlegar og skemmtilegar myndir smile Veistu hvað mér finnst samt toppurinn... að þú ert ennþá flottari núna en þegar þú varst 25 smile GÓÐA SKEMMTUN í kvöld!

Nr. 6 | posted by: Sigga | 24.02.2007 | 16:56:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web