Fimmtudagur, 04. janúar 2007
Ef maður getur tekið stig í að vera einhleypur var ég að taka tíunda stigið í kvöld. Ég horfði nefnilega á hryllingsmynd. Ein.
Þetta er nokkuð sem ég hef ekki þorað að gera síðan ég skildi og veit svosem hvað reddaði mér í kvöld, það var engin tónlist í myndinni. Ef það hefði verið tónlist væri ég líklega í fósturstellingu í sófanum, búin að pissa á mig og sjúgandi þumalinn. Hjálpaði líka að myndin fjallar um nokkuð sem er algjörlega out of my element. Hellasig.
Já og svo var ég með kveikt ljósið og mömmu í símanum en það telst ekki með, hún ofsækir mig.

Magnað, ég hef aldrei verið neitt rosalega spennt fyrir þessu sporti og eftir að ég sá þessa mynd er ég orðin algjörlega afhuga því að láta mig síga ofaní göt í fjöllum. Er ekki viss um að ég fáist til að gista í tjaldi aftur, hvað þá meira. Spáið í ef þetta hefði verið mynd um golf. Ég myndi aldrei koma nálægt því aftur - ekki séns.

Ég verð að segja að ég er mökk stolt af sjálfri mér, enda gengur ekkert upp að hætta að horfa á hrylling þó maður sé single, það er rugl. Gengur ekki heldur að fá einhverja góðhjartaða menn til að halda í höndina á sér á meðan, það myndi bara misskiljast. Nei. Maður verður að horfast í augu við óttann. Ég er líklega orðin fullorðin.
Mæli annars með þessari mynd, mjög spennandi og akkúrat rétta meðalið við eirðarleysi. Ég hef næstum ekkert hreyft mig síðan hún kláraðist. Kannski sef ég bara hérna í nótt.
Og ekki dissa mig fyrir að vera eftirá þó myndin sé gömul - I've been busy.