Þriðjudagur, 02. janúar 2007
Hvað er meira viðeigandi en að byrja nýja árið með nýju debetkorti? Fann þetta (neðra kortið - obviously) í póstkassanum mínum þegar ég kom heim.
Það er ótrúlegt að þetta sé sama manneskjan. Enda er þetta ekki sama manneskjan. Manneskjan á efra kortinu hélt að lykillinn að hamingjunni fælist í að finna rétta manninn. Manneskjan á neðri myndinni veit betur.
Ég skammast mín eiginlega fyrir að vera ekki löngu búin að updeita þessar upplýsingar og tel miklar líkur á að ég muni skipta um mynd mánaðarlega næstu sex mánuði.
Niii.. segi svona.