www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kalkúni - áramót 2006
Mánudagur, 01. janúar 2007

Ég er ekki hrifin af ferskjum og svoleiðis og í ár ákvað ég að búa til kalkúna úr tveimur uppskriftum sem ég hafði orðið mér útum. Útkoman var einn besti kalkúni sem ég hef smakkað, þó ég segi sjálf frá. Svona eldaði ég áramótafuglinn.

turke_brine.jpg

Daginn fyrir gamlársdag setti ég kalkúnan í pækil sem var í hlutföllunum 1 á móti 16 (salt á móti vatni). Ég kryddaði pækilinn ekkert meira en með salti. Vatnið verður að fljóta yfir fuglinn. Ég var með plastkassa með loki sem tekur 15 lítra og fuglinn var ca fjögur kg svo þetta reyndist full lítill kassi. Verð með 20 lítra kassa næst.

IMG_2339.jpg

Á gamlársdag tók ég fuglinn úr pæklinum, skolaði hann og hafði hann í ísskáp í nokkra klukkutíma á meðan hann var að jafna sig.

Smjörsteikti lauk og innvolsið úr fuglinum í potti, setti að lokum 3 bolla af vatni samanvið og lét malla. Þetta var í rauninni að malla allan daginn og ég bætti við vatni eftir þörfum.

IMG_2335.jpg

Fylling:

1 laukur
3 stönglar sellery
1 hrátt egg
250 - 300 gr brætt smjör
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar
1/2 tsk thyme
1 msk poltry seasoning
1/4 tsk rósmarín
5 brauðsneiðar
paxo onion og eitthvað stuffing, stór pakki

IMG_2334.jpg

Brauðið ristað í ofni á undir og yfirhita við 200° þangað til það er orðið kristpí, þá er það skorið niður í teninga.

Smjörið er brætt og sett í skál ásamt egginu og kryddinu. Sjörið má ekki vera of heitt. Því næst er öllu hinum blandað samanvið og þegar því er lokið er því troðið inní fuglinn.

IMG_2337.jpg

IMG_2349.jpg

Stillti ofninn á blástur og hitaði í 160° - setti fuglinn inn klukkan korter í þrjú. Næst ætla ég að setja fuglinn inn í kaldan ofn. Ég blandaði saman smjöri og kalkúnakryddi frá pottagöldrum og smurði kalkúnan, setti svo viskastykki sem ég var búin að bleyta uppúr smjöri yfir. Ég setti ekkert vatn í pottinn og hafði lokið á.

Fuglinn er steiktur í 40 -45 mínútur fyrir hvert kg. Þannig myndi maður steikja 5.5 kg kalkúna í ca 3 og 1/2 klukkutíma. Á klukkutíma fresti er gott að vinda viskastykkið uppúr smjöri og leggja aftur yfir fuglinn.

IMG_2348.jpg

Tveimur klukkutímum áður en við borðuðum bætti ég ýmsu útí innvolsið sem var búið að malla allan daginn og studdist við uppskrift úr 2. tölublaði Bistró.

2. msk olía
gulrætur
laukur
sellerístöngull
pipar
salt
timian

Ég leyfði þessu að malla þangað til ég þurfti að búa til sósuna, þá sigtaði ég allt gumsið frá, bætti hvítu maizena sósudufti útí og sósulit. Útkoman var alveg lygilega góð sósa.

turkey1.jpg

Ég stakk hitamæli í kjötið en líklega er hann bilaður svo ég notaði hann ekkert. Stillti ofninn á 200° rétt eftir klukkan sex og brúnaði fuglinn í nokkrar mínútur og voila.. einn besti kalkúni sem ég hef á ævinni smakkað.

Næst þarf ég að muna að kaupa nógu mikið smjör þar sem fer mikið af því í steikinguna á fuglinum.


| anna | 20:37 |
comments

úff, the troubles of being a housewife smile Held ég þurfi að fara í matreiðslunámskeið, amk. námskeið í að klúðra ekki matseld. Ég hefði verið búin að klúðra þessu á stigi 1, þ.e. að stilla ofninn á 160 gráður. Enda á ég mjög vel upp alinn kærasta, annars væri framtíðin svöng shy
Gleðilegt nýtt ár Anna!

Nr. 1 | posted by: Guðrún | 1.01.2007 | 21:01:03 | [+] |

Iss. Trikkið er að kunna að fara eftir leiðbeiningum og hafa lag á að verða sér útum nógu góðar uppskriftir. wink

Gleðilegt nýtt ár!

(hvernig gekk í prófunum?)

Nr. 2 | posted by: anna | 1.01.2007 | 21:03:55 | [+] |

Próf eftir tvo daga smile Held að trikkið sé að vera hæfilega kærulaus... sjáum til hvort það sé rétt hjá mér nerd

Nr. 3 | posted by: Guðrún | 1.01.2007 | 21:05:58 | [+] |

Ég held reyndar að það sé rétt hjá þér, þetta með að vera hæfilega kærulaus þegar kemur að prófum. Maður græðir ekkert á því að fara úttaugaður í próf.

Gangi þér vel! smile

Nr. 4 | posted by: anna | 1.01.2007 | 21:08:09 | [+] |

Kalkúni...............kalkúnn...............kalkúni................kalkúnn........... Er að fara á límingunum yfir þessu!! weepy

Nr. 5 | posted by: lindablinda | 1.01.2007 | 22:07:28 | [+] |

lol

Nr. 6 | posted by: anna | 1.01.2007 | 22:20:24 | [+] |

Satín, silki og sælkerakokkur. Það er eitthvað bogið við þetta, einhvers staðar .. hmmm

Nr. 7 | posted by: Hugz | 1.01.2007 | 22:55:59 | [+] |

Ég hef aldrei etið kalkúna, nema sem álegg á Subway.

Núna langar mig í kalkúna.

Nr. 8 | posted by: Bastarður Víkinga | 1.01.2007 | 23:00:39 | [+] |

Hvað er svona bogið við þetta Hugz?

Ég skil þig Bastarður. Þetta er hrikalega góður matur. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 1.01.2007 | 23:06:08 | [+] |

Reynslan hefur kennt mér að fagrar konur sem sofa í satíni kunna ekki að elda. Og öfugt ...

Nr. 10 | posted by: Hugz | 1.01.2007 | 23:18:01 | [+] |

Áhugavert.

Ertu að segja að ég sé eitthvað óvenjuleg?

Nr. 11 | posted by: anna | 1.01.2007 | 23:24:57 | [+] |

Guðrún: notaðu Steve McQueen aðferðina á prófin. Hún er best og ef þú ert LÍKA búin að læra vel fyrir þau ertu ósigrandi wink

Anna, hvenær er mér boðið í afganga. Hvort viltu rautt eða hvítt með? happy

Nr. 12 | posted by: Kalli | 2.01.2007 | 0:06:47 | [+] |

Anna: ég hélt að við hefðum komist að þeirri niðurstöðu fyrir langa löngu wink

Gleðilegt ár annars og já, kalkúnn er góður. Hátíðakjúllinn sem systir mín eldaði var hinsvegar ekkert síðri en kalkúnn. Magnað góð eldamennska hjá henni. Og til að rugla Hugz enn meira, þá er hún ekkert ósvipuð henni Önnu, að nördageninu fráskildu. Silki, satín, whatever - og kann að elda alveg massavel.

Nr. 13 | posted by: Þór | 2.01.2007 | 1:09:47 | [+] |

Heppilegt nýtt ár! wave

Nr. 14 | posted by: astvinr | 2.01.2007 | 11:04:30 | [+] |

Hi Ástvinr. Don't you mean "Gleðilegt" nýtt ár?

I think you did an awesome job translating that part of my blog. Guess I'm not that safe after all.. thought I could write anything and only icelanders would understand. smile

Where did you learn Icelandic?

Oh.. and happy new year! Gleðilegt nýtt ár!

Nr. 15 | posted by: anna | 2.01.2007 | 11:18:49 | [+] |

Ég ætla að bjóða þér í heimsókn og leyfa þér að raða í ísskápinn minn. Þinn virðist vera lita kóðaður. Love it.

Nr. 16 | posted by: Barbie | 2.01.2007 | 12:33:47 | [+] |

Þór : Er systir þín á aldursbilinu 18 - 50 ??

Anna : þú ert að verða sífellt venjulegri, það virðast nú streyma að konur í satíni sem eru listakokkar laughing

Nr. 17 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 16:18:52 | [+] |

Já maður fer að velta fyrir sér hversu mikla reynslu um ræðir hjá þér..

toungue

Nr. 18 | posted by: anna | 2.01.2007 | 16:22:57 | [+] |

Hugz: já.

Nr. 19 | posted by: Þór | 2.01.2007 | 16:40:13 | [+] |

Hehe, maður þarf að gefa þessu góðan tíma sjáðu til. Ekki hægt bara að stökkva rúm úr rúmi. Þið platið mann nefnilega með því að byrja í satíninu og elda oní mann. Svo líður tíminn og einn daginn brestur á með köldu pasta og vaðmáli. Annars þyrfti helst að stofna miðlægan gagnagrunn með svona upplýsingum, maður hefur ekki tíma fyrir alla þessa rannsóknarvinnu colgate

Nr. 20 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 16:40:49 | [+] |

lol þessi var góður.

Mér finnst gaman að elda mat. Og ég skal alveg semja um að vera alltaf í silkipakkanum ef.. karlmaðurinn er alltaf með sléttan maga.

Annars. Hversu miklu máli skiptir það karlmenn að konur sofi í fallegum náttkjólum? Mín reynsla er sú að þegar maður er búinn að vera x lengi í sambandi skiptir ekki máli hvort það er silki eða satín eða nærbuxurnar hans afa.

Nr. 21 | posted by: anna | 2.01.2007 | 16:50:09 | [+] |

Þín reynsla já ... maður veit nú ekki hvað á að gera mikið úr henni melodramatic

Nr. 22 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 19:52:33 | [+] |

Þú gætir byrjar á að segja mér hvort þú kannist við þetta scenario. Ef það er eitthvað að marka þetta persónuleikapróf ættirðu ekki að hafa hugmynd um hvað ég er að tala um.

Bachelorar eru ekkert rosalega mikið í langtíma samböndum, er það? wink

Nr. 23 | posted by: anna | 2.01.2007 | 20:04:31 | [+] |

Bachelor er náttúrulega bara tímabundið ástand sko. En ég sé að þú ert greinilega ein af þeim sem skipa yfir í bómullina að löndun lokinni (gat nú verið weepy )

Nr. 24 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 20:14:39 | [+] |

Þetta er rétt og rangt hjá þér. Daginn sem maðurinn hættir að taka eftir mér og í hverju ég er, hef ég hætt að pæla í því sjálf.

Það eru mistök.

Ef ég finn einhvertíma mann og ef þetta gerist aftur mun ég henda manninum út, enda hef ég ekkert við mann að gera sem tekur ekki eftir mér. Það er svo miklu skemmtilegra að sofa í silki - þó maður sé einn í rúminu. wink

Nr. 25 | posted by: anna | 2.01.2007 | 20:19:12 | [+] |

Já þú meinar. Ef maðurinn sem sagt gerði athugasemdir við bómullina, myndir þú þá skipta yfir í silkið ? Eða heimta nýjan bíl fyrst ??

Nr. 26 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 20:24:54 | [+] |

Jeisús!! Hérna megin voru bara kornhænur, það er ólíkt meðfærilegri eldamennska.

Nr. 27 | posted by: AlanHudson | 2.01.2007 | 20:43:35 | [+] |

Heimta nýjan bíl?

Ég hef ekki einu sinni fengi kjól að gjöf frá kærasta, hvað þá bíl. Fjárhagslegur ávinningur er eitthvað sem ég hef ekki orðið vör við að fylgi karlmönnum. Aukin útgjöld eru nær lagi.

Ég fæ meðlög með tveimur börnum og skertar barnabætur sem rétt hrökkva fyrir því sem ég borga til Lín á hverju ári. Samt hef ég aldrei haft það betra fjárhagslega en einmitt núna. Heilinn á mér tengir það beint við karlmannsleysi.

sjálfsögðu myndi maður make an effort ef maður væri látin finna að viðkomandi kynni að meta það. Tala nú ekki UM ef mann auminginn drullast til að koma heim með eitthvað fallegt fyrir mann til að klæðast once in a while - og þá er ég ekki að tala um hóruföt úr 4-play eða álíka.

Nr. 28 | posted by: anna | 2.01.2007 | 20:59:30 | [+] |

Mér fannst þetta nú ekkert agalegt ves miðað við hvað þetta var gott Alan. Eru kornhænur ekki hrikalega góðar? Þarf að prufa svoleiðis.

Nr. 29 | posted by: anna | 2.01.2007 | 21:01:42 | [+] |

Ehem ... dreg þetta með bílinn til baka. Vil ekki enda með umræddan brúsa uppi í hægri nösinni (og við ræðum ekki nefstærðir hér!) doubt
Ég hef hins vegar gengið í gegnum þetta undirfatakaupadæmi (og ég verslaði í mjög virðulegri dömuverslun). Það þarf hins vegar undantekninglítið að skipta því sem maður kaupir því það er of þröngt/vítt/óþægilegt/fyllt/spengt/ljótt osfr. Þó svo að hugurinn sé tekinn fyrir verkið þá verður þetta frekar leiðingjarnt til lengdar. Þið konur komið í allt of mörgum stærðarflokkum. Og mismunandi ofan/neðan stærðir. Það er miklu auðveldara að velja b**, nei ég meina .. hanska angel

Nr. 30 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 21:52:49 | [+] |

Vill svo skemmtilega til að ég er kona sem passa í stærðir. Það eina sem viðkomandi þarft að vita er 34d svo ekki hafa þeir það sem afsökun.

Reyndar keypti síðasti kærasti minn samfellu á mig í útlöndum, mjög fallega. En það reyndist vera.. "one time only".

Hann gerði mig samt svo glaða og hissa þegar hann gaf mér þetta. Enda tók ég þessu sem merki um að honum væri alvara. Ég er fáviti.

Nr. 31 | posted by: anna | 2.01.2007 | 22:14:20 | [+] |

Jamm, þetta getur líka verið cheap trick.
Samt ótrúlega heppin að passa í stærðir !
Ætli það streymi nú inn pakkar til þín frá VS ?

Nr. 32 | posted by: Hugz | 2.01.2007 | 23:27:47 | [+] |
Heimta nýjan bíl?

Ég hef ekki einu sinni fengi kjól að gjöf frá kærasta, hvað þá bíl.

Úps Anna. Ég er ekki viss um að Ken verði ánægður með þessa yfirlýsingu.

http://www.anna.is/weblog/2006/10/for_illa_me_mig_arna.html

Nr. 33 | posted by: egill | 2.01.2007 | 23:52:27 | [+] |

Cheap trick. Já það má segja það og já ég er heppin að passa í stærðir. Ég er að mörgu leyti heppin í lífinu - en ég væri alveg til í að skipta út því að passa í stærðir fyrir soldið annað.

Mér þætti ekki viðeigandi að þiggja þannig gjafir frá einhverjum og einhverjum. Finnst það hallærislegt.

Æ.. oh.. ég er svo vond við hann Ken. Og hann hefur gefið mér kjóla líka! Oft!

Svo finnst fólki skrítið að ég kjósi frekar að lifa lífinu á blogginu?

Nr. 34 | posted by: anna | 2.01.2007 | 23:55:41 | [+] |

Vá sæt, sophisticated, smart, og kann að elda....

is it to good to be true?

Nr. 35 | posted by: Jói | 12.04.2007 | 23:10:49 | [+] |

Mín reynsla er að ef eitthvað virðist of gott til að vera satt, þá er það venjulega of gott til að vera satt.

Ég.. er hinsvegar undantekningin, sem sannar regluna.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 36 | posted by: anna | 14.04.2007 | 2:18:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web