Laugardagur, 06. janúar 2007
Í kvöld tókum við jólin niður og ég fór meira að segja með þau niður í geymslu. VÚHÚ!
Þegar við vorum laus við jólin úr íbúðinni fór frumburðurinn og keypti hálfan líter af ís, eins og okkur finnst gott að gera stundum, og svo horfðum við öll saman á myndina "Little Miss Sunshine".
Það er í einu orði sagt yndisleg mynd.
Trivia. Hálfur líter af ís er nóg fyrir okkur þrjú. Það er meira að segja alltaf afgangur.