Miðvikudagur, 17. janúar 2007
Eftir ég ráðfærði mig við lækni í morgun hef ég fengið grun minn staðfestann. Ég varð fullorðin um helgina. Gerðist á laugardaginn í bílnum á leiðinni frá Smáralind. Ég stillti yfir á útvarpið, rás tvö, og ég fann hvernig ég fullorðnaðist nær samstundis. Ég er búin að vera í sjokki. Læknirinn sagði að þetta væri mjög óvenjulegt, oftast verður fólk smátt og smátt fullorðið, nema örfáir einstaklingar sem ná aldrei þessum áfanga - eins og Hodja.
Einhverjar spekúlesjónir voru hjá lesenum um hvað hafði gerst og ég er stórmóðguð yfir því að lesendur skuli láta sér detta í HUG að ég sé búin að finna karlmann. Og halda framhjá Glitni? Er ekki í lagi heima hjá ykkur? Come on. Ég er of loyal fyrir þannig rugl.
Það eina sem stefnir niðurá við er bloggtilvera mín, sem er algjörlega morkin þessa dagana, vil ekki skrifa um neitt sem ég er að gera - hef ekki tíma til að bulla og það er eiginlega eins og anna.is sé komin á gjörgæslu. Líf hennar er að fjara út smátt og smátt.
Held að þetta sé spurning um adrenalin sprautu - raflost, eða veita þessu náðarhöggið bara..