Mánudagur, 01. janúar 2007
Ég er ekki hrifin af ferskjum og svoleiðis og í ár ákvað ég að búa til kalkúna úr tveimur uppskriftum sem ég hafði orðið mér útum. Útkoman var einn besti kalkúni sem ég hef smakkað, þó ég segi sjálf frá. Svona eldaði ég áramótafuglinn.

Daginn fyrir gamlársdag setti ég kalkúnan í pækil sem var í hlutföllunum 1 á móti 16 (salt á móti vatni). Ég kryddaði pækilinn ekkert meira en með salti. Vatnið verður að fljóta yfir fuglinn. Ég var með plastkassa með loki sem tekur 15 lítra og fuglinn var ca fjögur kg svo þetta reyndist full lítill kassi. Verð með 20 lítra kassa næst.

Á gamlársdag tók ég fuglinn úr pæklinum, skolaði hann og hafði hann í ísskáp í nokkra klukkutíma á meðan hann var að jafna sig.
Smjörsteikti lauk og innvolsið úr fuglinum í potti, setti að lokum 3 bolla af vatni samanvið og lét malla. Þetta var í rauninni að malla allan daginn og ég bætti við vatni eftir þörfum.

Fylling:
1 laukur
3 stönglar sellery
1 hrátt egg
250 - 300 gr brætt smjör
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar
1/2 tsk thyme
1 msk poltry seasoning
1/4 tsk rósmarín
5 brauðsneiðar
paxo onion og eitthvað stuffing, stór pakki

Brauðið ristað í ofni á undir og yfirhita við 200° þangað til það er orðið kristpí, þá er það skorið niður í teninga.
Smjörið er brætt og sett í skál ásamt egginu og kryddinu. Sjörið má ekki vera of heitt. Því næst er öllu hinum blandað samanvið og þegar því er lokið er því troðið inní fuglinn.


Stillti ofninn á blástur og hitaði í 160° - setti fuglinn inn klukkan korter í þrjú. Næst ætla ég að setja fuglinn inn í kaldan ofn. Ég blandaði saman smjöri og kalkúnakryddi frá pottagöldrum og smurði kalkúnan, setti svo viskastykki sem ég var búin að bleyta uppúr smjöri yfir. Ég setti ekkert vatn í pottinn og hafði lokið á.
Fuglinn er steiktur í 40 -45 mínútur fyrir hvert kg. Þannig myndi maður steikja 5.5 kg kalkúna í ca 3 og 1/2 klukkutíma. Á klukkutíma fresti er gott að vinda viskastykkið uppúr smjöri og leggja aftur yfir fuglinn.

Tveimur klukkutímum áður en við borðuðum bætti ég ýmsu útí innvolsið sem var búið að malla allan daginn og studdist við uppskrift úr 2. tölublaði Bistró.
2. msk olía
gulrætur
laukur
sellerístöngull
pipar
salt
timian
Ég leyfði þessu að malla þangað til ég þurfti að búa til sósuna, þá sigtaði ég allt gumsið frá, bætti hvítu maizena sósudufti útí og sósulit. Útkoman var alveg lygilega góð sósa.

Ég stakk hitamæli í kjötið en líklega er hann bilaður svo ég notaði hann ekkert. Stillti ofninn á 200° rétt eftir klukkan sex og brúnaði fuglinn í nokkrar mínútur og voila.. einn besti kalkúni sem ég hef á ævinni smakkað.
Næst þarf ég að muna að kaupa nógu mikið smjör þar sem fer mikið af því í steikinguna á fuglinum.