www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Uppfærsla
Laugardagur, 16. desember 2006

small-1.jpgÉg á í smá erfiðleikum með að ákveða hvora myndina hér til hliðar ég á að nota í nýja debetkortið mitt. Augljóslega er þetta sitthvor útgáfan af sömu myndinni og já, ég er í alvöru að fara að gera eitthvað í þessu máli, aðeins sjö árum eftir að ég setti þetta á "to do" listann.

Ég er orðin leið á að afgreiðslufólk horfi á mig, debetkortið, mig, debetkortið og mig aftur og lyfti augabrúnunum. Ég er líka orðin þreytt á að fólk horfi á undirskriftina mína og kortið og undirskriftina mína og kortið.. o.s.frv.

small-2.jpgHér er hægt að skoða hörmungina í allri sinni dýrð. Þetta er ævintýralega vond mynd af mér. Það fer mér nefnilega ekki svona illa að vera með stutt hár. Fer mér mjög vel actually en þetta er gömul mynd og þetta er gömul undirskrift.

Í London í haust varð mér ljóst að ég yrði að bumpa þessu upp um 217 sæti á "to do" listanum þar sem ég lenti ítrekað í vandræðum með að nota kortið mitt úti vegna þess að hvorki myndin þótti líkjast mér né undirskriftin þeirri sem er á kortinu. Stundum var ég actually beðin um að skrifa aftur undir og rembdist þá við að skrifa eins og ég gerði.. fyrir fimmtán árum síðan, og þó kortið mitt sé ekki að renna út alveg strax mun ég færa öll mín bankaviðskipti yfir í annan banka á næstu vikum. Það á sínar eðlilegu skýringar og þetta er kjörið tækifæri til að uppfæra upplýsingarnar í reiknistofu bankanna.

Mér finnst þessi nýja mjög passamyndaleg mynd af mér en það sem skiptir öllu: ég þekkist af henni.

Svona er undirskriftin mín í dag:

sign.jpg

Það er ekkert skrítið að fólk haldi að þetta sé stolið kort.

En hvora myndina á ég að velja? Þessa heitu fyrir ofan eða köldu fyrir neðan?

Ég myndi spyrja Ken nema hann er sofandi og ég hef grun um að hann komi til með að sofa lengi þar sem ég byrlaði honum allar roofie birgðirnar hans Margeirs. Bjó til bananasplitt með 834 roofies og gaf honum. Ken finnst ís svo góður. Margeir verður ekki glaður. Með þessu hef ég drepið allt hans félagslíf.


| anna | 0:12 |
comments

Efri, hún endist lengur þegar litirnir fara að dofna.

Þekki þetta vel með undirskriftina mína. Mín er þannig að það þarf mikinn vilja til að sjá nafnið mitt út úr henni, ég lít núorðið á þetta sem undirskriftar"merkið" mitt. Fyrir 15 árum var ég enn að rembast að skrifa nafnið mitt, staf fyrir staf. Nútímamaðurinn hefur engan tíma fyrir þannig dútl.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 16.12.2006 | 2:51:29 | [+] |

Ég hugsa að það skipti engu máli hvora myndina þú notar, þær eru báðar góðar. Og verður ekki myndin hvort sem er svarthvít eða allt að því þegar hún er komin á kortið?

En mikið sem ég þekki þetta mál með gamla mynd á korti, þetta er líka eitt af því sem ég hef lengi ætlað að gera, láta bankann fá nýja mynd. Verð alltaf jafn pirruð þegar ég fæ nýtt plúskort sent með sömu asnalegu myndinni. Og mér fannst það bara ekkert fara mér vel að vera með stutt hár, allavega ekki á þeirri mynd.

Nr. 2 | posted by: Fríða | 16.12.2006 | 6:28:18 | [+] |

Köldu, fer betur út úr afskræmingum Reiknistofu Bankanna.

Nr. 3 | posted by: DonPedro | 16.12.2006 | 10:13:29 | [+] |

Heitu. Því ég trúi á það góða í heiminum.

Nr. 4 | posted by: Kalli | 16.12.2006 | 10:34:36 | [+] |

Hvar skiptir maður um mynd, annars?

Nr. 5 | posted by: Elías | 16.12.2006 | 10:49:36 | [+] |

SKIPTA um banka?? en þú ert í besta banka í heimi toungue

og ég kýs köldu...því þú ert kúl.

Nr. 6 | posted by: Elín | 16.12.2006 | 12:32:46 | [+] |

Ég held nefnilega einmitt að þessi kalda komi betur út í meðförum reiknistofu bankanna. Þú ferð með tvær myndir í hvaða bankaútibú sem er hjá hvaða banka sem er og skilar inn umsókn með undirskrift. Þeir skila þessu inn hjá reiknistofu bankanna og voila! Þú ert updated.

Nr. 7 | posted by: anna | 16.12.2006 | 12:35:48 | [+] |

Þú ferð með köldu. Það er eins og RB bæti við litinn á hluta myndarinnar, og ef þú ferð með þá heitu, þá líturðu út eins og þú hafir sofnað í ljósalampa.

Ég fór með svellkalda mynd síðast þegar ég uppfærði. Hún er ennþá svellköld efst og neðst, en svona júlí-hlý í miðið.

Hvaða bönkum ertu annars að fara frá/til ?

Nr. 8 | posted by: Þór | 16.12.2006 | 13:38:29 | [+] |

Þessi kalda er it.

Elín, þessi fullyrðing gæti verið.. röng hjá þér. wink

Þór. Svara þessu með hvaða banka seinna.

Nr. 9 | posted by: anna | 16.12.2006 | 13:41:22 | [+] |

Ég bæði vona að það sé rétt hjá þér og ekki ....ha ha ha

Nr. 10 | posted by: Elín | 16.12.2006 | 15:58:43 | [+] |

Hvar er hægt að fá plaggat með gömlu myndinni ? Þetta er hrein snilld !!

Nr. 11 | posted by: Hugz | 16.12.2006 | 22:00:02 | [+] |

Þetta verður fáanlegt í anna.is búðinni árið 2008.

Þetta verður bestseller for sure. hehehe

Nr. 12 | posted by: anna | 16.12.2006 | 23:14:32 | [+] |

Efri myndin, hún er miklu líflegri.
Þó þú sért gullfalleg á báðum þá nær hún að ýta meira undir fegurðina.

Nr. 13 | posted by: Maggi G | 17.12.2006 | 5:20:56 | [+] |

efri er betri, en líklega rétt að hin fari betur úr myndatortúrnum hjá RB. Skil þetta annars vel með undirskriftina, mín er líka algerlega óþekkjanleg frá þeirri á kortunum mínum.

Mæli annars með nb.is colgate

Nr. 14 | posted by: hildigunnur | 17.12.2006 | 9:50:33 | [+] |

Neðri myndin sætari.

Nr. 15 | posted by: Barbie | 17.12.2006 | 21:06:35 | [+] |

Neðri er betri... Ég er strax byrjaður að prenta út ávísanir í þínu nafni fyrst þú varst svo væn að setja undirskriftina þína svona á netið smile

Einhvernveginn verða fátækir námsmenn að fjármagna jólin =)

Nr. 16 | posted by: Andri | 18.12.2006 | 12:38:31 | [+] |

Notar einhver ávísanir í dag? hehe

Nr. 17 | posted by: anna | 18.12.2006 | 12:41:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web