Föstudagur, 22. desember 2006
Sumt fólk sagði að ég myndi aldrei finna þann rétta.
Að ég gerði of miklar kröfur.
Að það sem ég vildi væri ekki til.
Og það var rétt, ég fann hann ekki.
Hann fann mig.
Í dag hitti ég fólkið sem ég mun vinna mest með á nýja staðnum. Ég hlakka verulega til að takast á við þetta verkefni.
Það var líka aldrei skilyrði að "sá rétti" væri karlmaður, hann mátti líka alveg vera banki.

G l e ð i l e g J ó l !