Fimmtudagur, 14. desember 2006
Það er ástæða fyrir því að sms-ið frá Gulla innihélt orðið "heilbrigð". Ég hætti að skrifa um krókódílinn á sínum tíma þegar Júlía hringdi í mig með þær skelfilegu fréttir að það hefðu fundist blöðrur í lunganu á fóstrinu í sónar. Þegar svona finnst eru miklar líkur á fósturláti og ef móðirin nær að klára meðgönguna eru miklar líkur á því að barnið þurfi að fara í skurðaðgerð þegar það fæðist.
Hvað á maður eiginlega að segja?
Vill til að ég er sérfræðingur í meðvitaðri afneitun and it kicks in on cue.
Með áherslu á meðvitaðri.
Ég ákvað að þetta myndi fara vel og ég sagði Júlíu það.. en ég var skíthrædd. Ég vissi hinsvegar að það síðasta sem Júlía þurfti á að halda var að ég myndi panikka. Ég sagði henni að reikna með að þetta myndi fara vel og takast á við það sem gerðist þegar það gerðist. Það er það eina sem hægt er að gera í þessari stöðu. Vona það besta.
Það var auðvitað fylgst rosalega vel með Júlíu, stöðugt í tékki og í einu tékkinu sáust nærri engar blöðrur, í öðru sáust þær aftur. Engin vissi fyrir víst hvernig þetta myndi fara og maður var ekkert rólegur. Ég var stödd útí bæ þegar ég fékk þetta sms og ég greip fyrir munninn. Náði að halda aftur af tárunum á meðan ég var að klára það sem ég þurfti að gera þar sem ég var (I'm a pro) en á leiðinni út í bíl brutust tárin fram. Ég var svo fegin. Ég var svo fegin og þakklát.
Fyrr um daginn hafði mamma hringt. Við vissum báðar að Júlía var komin af stað og mamma var gjörsamlega að sturlast úr áhyggjum og ég sagði við hana að þetta myndi allt fara vel. En ég vissi það ekki. Ég held að ég hafi upplifað alla hræðsluna og óvissuna og áhyggjurnar þarna um leið og það var safe að gera það.
Seinnipartinn fór ég uppá fæðingardeild og sá þetta litla kraftaverk sem Júlía og Gulli bjuggu til og færðu í heiminn. Svo lítil og vær. Fullkomin, eins og börn eru þegar þau eru nýfædd. Ég fór með krókódílagjöfina sem ég keypti löngu áður en þetta kom upp alltsaman og súkkulaði fyrir Júlíu. Maður verður að eiga súkkulaði uppá fæðingardeild, það eru lágmarks mannréttindi eftir þetta kvalræði.
Það var rosalega skrítið að sjá Júlíu. Hún var svo úrvinda og þreytt og svo.. familiar. Ég hef séð myndir af mér í þessu ástandi. Og það var svo gott að sjá hvað hann Gulli er góður við hana.
Matthildur Elín á eftir að eiga gott líf.