Þriðjudagur, 12. desember 2006
Allt sem hefur gerst í lífi mínu fram að deginum í dag verður hér eftir kallað BS. (Before slicers)
Í dag fékk ég veður af því að það væri til nokkuð sem heitir "bananasneiðir". Ég fór strax á netið að leita, fyrst fann ég þessa síðu sem mér finnst skerí, to say the least, en hugrökk sem ég er hélt ég áfram að leita og sjá! Ég fann Bananasneiði!

Mig langar í svona.
Mig langar samt ekki bara í svona banana-sneiða-gerða-tæki. Nei. Ég fann fleira áhugavert á ferð minni um frumskóga niðursneiðingatóla á Internetinu og það er orðið nokkuð ljós að ég get ekkert lifað án þess að eignast Avocado slicer.

Af hverju vissi ég ekki að þetta tæki væri til? Ha? Kemur alltaf betur og betur í ljós hversu illa uppalin ég er.
Þar fyrir utan langar mig í nýjan epla slicer (það er ekki nóg að eiga einn) og mango slicer. Svo vantar mig skrælitæki líka og mér finnst þessi soldið cool. Og mig vantar Mandólín.
Svarar þetta spurningunni þinni Lifur? Þetta er það sem ég vil. Allt þetta. Ég er ennþá með jólagjöfina þína frá því í fyrra. Á ég að senda þér hana einhvert?