www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Drengjasögur um afreksverk hetjunnar BOB MORAN
Sunnudagur, 10. desember 2006

Það voru gefnar út 28 Bob Moran bækur á árunum 1960 til 1975.

1. Ungur ofurhugi
2. Ævintýri á hafsbotni
3. Græna vítið
4. Eldklóin
5. Ógnir í lofti
6. Fjársjóður sjóræningjanna
7. Rauða perlan
8. Kjarnorkuleyndarmálið
9. Smyglaraskipið
10. Njósnarinn með þúsund andlitin

11. Maðurinn með gulltennurnar
12. Guli skugginn
13. Eyðimerkurrotturnar

14. Hefnd Gula skuggans
15. Dalur fornaldardýrann
16. Refsing Gula skuggans (holy sh.. þessa verð ég að eignast)
17. Stálhákarlarnir
18. Vin "K" svarar ekki
19. Endurkoma Gula skuggans

20. Svarta höndin
21. Njósnarinn ósýnilegi

22. Tvífarar Gula skuggans
23. Augu Gula skuggans
24. Leyndardómur Mayanna
25. Arfur gula skuggans
26. Leynifélag löngu hnífanna
27. Hermenn Gula skuggans
28. Uppruni Gula skuggans (Kóróna Golkonda)
----------

Og hvað haldiði!

Í kvöld kom hann Kalli og færði mér tólf Bob Moran bækur af þessum tuttugu og átta. Ég feitletraði titlana sem hann lét mig fá og ætla að reyna að eignast þær allar með tímanum. Set allt mitt traust á fornbókabúðirnar. Spái því að ég muni lesa þessar um jólin, enda eru þetta barnlaus jól hjá mér í fyrsta skipti síðan ég eignaðist börn svo ég þarf lítið að hugsa um annað en sjálfa mig.

Ég var ekkert yfir mig spennt að vera án krakkana um jólin og þegar pabbi þeirra spurði mig hvort ég vildi bara ekki fá þau öll í mat á aðfangadag og hann færi svo heim með þau seinna um kvöldið eftir pakkana - það liðu ca 2 sek áður en ég sagði já.

Mér finnst þetta svo fallega boðið af honum. Veit að hann er að slá sér upp og grunar að hann sé að gera þetta meira fyrir mig en sig. Það kemur auðvitað að því að ég verð barnlaus einhver jól þegar hann er kominn í sambúð, en ég er að vona að þá verði ég búin að.. kaupa gullfisk.

Í ár hef ég Bob Moran.


| anna | 23:37 |
comments

Bíddu, heitir hann ekki Bob Morane?

Og þú veist að hann var franskur. Uppá karlmennskuna, meina ég.

Annars hef ég alltaf verið meiri svona Mack Bolan kinda guy.

Nr. 1 | posted by: Bastarður Víkinga | 11.12.2006 | 1:37:46 | [+] |

Já ég veit að hann er franskur. Bömmer - but what are you gonna do. Maður getur víst ekki haft þetta allt eftir eigin höfði og hann er allavega ekki þýskur.

Ástæðan fyrir því að ég held svona uppá Bob Moran er sú að ég trúi því að hann hafi gefist upp á þessu ævintýrabrölti sínu.. og gerst endurskoðandi.

Já. Mér finnst það mjög trúlegt.

Hvað hefur Mack Bolan sem Bob hefur ekki?

Nr. 2 | posted by: anna | 11.12.2006 | 1:46:27 | [+] |

úff, segðu okkur frá því hvernig Bob hefur elst....held ég leggi ekki í að lesa bækurnar aftur, er svo hrædd um að ég verði fyrir vonbrigðum.

læt mig bara dreyma...um Bill angel

Nr. 3 | posted by: baun | 11.12.2006 | 9:40:58 | [+] |

Mack Bolan ? Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki að tala um Marc Bolan toungue

Nr. 4 | posted by: Hugz | 11.12.2006 | 9:57:36 | [+] |

Settu þig í bjánagírinn, þessar bækur hafa ekki elst vel. Ég var mikið fan sem krakki - las svo eina á fullorðinsárum og hrollaðist alveg helling. En góða skemmtun! colgate

Fallegt af þinum fyrrverandi. Ég hef núna átt nokkur svona barnlaus jól. Það er fátt erfiðara og einmanalegra.
En þá er að reyna að dekra sem mest við sjálfa sig - og lesa "góðar" bókmenntir laughing

Nr. 5 | posted by: lindablinda | 11.12.2006 | 10:13:56 | [+] |

Ég las nokkur kaflaheiti upphátt á meðan Kalli var í heimsókn og við drápumst næstum úr hlátri. Kannski get ég bara lesið hálfa áður en ég gefst upp.

Já mér finnst þetta mjög fallega boðið hjá blaðamanninum og þetta bjargar alveg mínum jólum.

Læt vita Baun hvernig aldurinn fer í bæði Bob og Bill wink

Nr. 6 | posted by: anna | 11.12.2006 | 11:10:08 | [+] |

Mack Bolan er karakterinn sem The Punisher er byggður á.

Það er töff.

Hann er algjörlega disfunkjúal.

Alltaf plús.

Hann veiðir og drepur mafíósa.

Æðislegt.

...

Annars hef ég aldrei lesið Morane, hann er fyrir mér ekkert nema enn einn tilgangslausi poppkúltúrstaðreyndamolinn inní gagnabankanum mínum sem ég kalla heila.

Ég er viss um að hann er hinn prúðasti maður (fyrir utan frönskuna).

Nr. 7 | posted by: Bastarður Víkinga | 11.12.2006 | 12:49:44 | [+] |

Marc Bolan er töff.

Nr. 8 | posted by: Kalli | 11.12.2006 | 13:11:32 | [+] |

Þetta var vegleg gjöf. Þú átt eftir að poppa yfir á Neshagann um jólin þegar þú situr ein, skíthrædd við Gula Skuggann og Hugi heyrir ekki í þér því hann er að taka upp Summertime í jólaútsetningu...

Nr. 9 | posted by: DonPedro | 11.12.2006 | 13:32:05 | [+] |

Kannski borgar sig ekkert fyrir mig að lesa Bob Moran fyrr en ég er búin að finna.. gullfisk. Svo ég sé ekki ein heima and all..

Mack Bolan hljómar eins og maður fyrir mig. Ef hann væri endurskoðandi.

Nr. 10 | posted by: anna | 11.12.2006 | 13:42:20 | [+] |

Það er gott að eiga góða að smile

Og summertime í jólaútsetningu!!! hihi

Nr. 11 | posted by: Fríða | 11.12.2006 | 17:42:00 | [+] |

mig langar til að lesa Eldklónna...
nei hvað er ég að tala um, mig langar til þessa að vera með eldkló.
Erum við ekki örugglega ennþá á jólagjafa-basis út af sameignilegu forræði yfir margeiri (ps hann er hér, og núna er hann að "líkamsmála" forstofuna með hnetusmjöri, virðist ætla að koma vel út). Allavega, þá langar mig í alvörunni eldkló í jólagjöf anna.
Hana mun ég hafa á litla fingri vinstri handar í framtíðinni.
Hvað vilt þú?

Nr. 12 | posted by: lifur | 12.12.2006 | 9:15:27 | [+] |

Hef lesið þær allar og á held ég allar sögurnar en ég tími enganveginn að láta þær af hendi smile

Nr. 13 | posted by: Andri | 12.12.2006 | 10:36:18 | [+] |

Ég er ekkert hissa á því Andri.

Lifur. Svarið við spurningunni þinni er hér.

Nr. 14 | posted by: anna | 12.12.2006 | 19:11:50 | [+] |

ok, þú færð svona! Hlakka til að sjá innbúið þitt í litlum, reglulegum sneiðum!

Nr. 15 | posted by: lifur | 14.12.2006 | 8:51:32 | [+] |

hæhæ, ég googlaði Bob Moran eftir bókatiltekt með móður minni og endaði hér. Ég er með "leynifélag löngu hnífanna" og "hermenn gula skuggans" og þér er velkomið að fá þær gefnar ef þér vantar þær ennþá. e-mailið mitt er tha8 at hi.is

Nr. 16 | posted by: Gerða | 27.09.2009 | 18:49:31 | [+] |

Frábært!

Bestu þakkir Gerða, ég þigg þetta með þökkum! (Ég er búin að uppfæra þennan lista jafnt og þétt smile)

Nr. 17 | posted by: anna | 27.09.2009 | 19:22:42 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web