Fimmtudagur, 07. desember 2006



Búið að lita rammana, þrífa glerið, útbúa hanka (er til skárra orð?) og líma textann aftaná.
Myndin hér fyrir neðan er gömul og allar þessar dúkkur löngu seldar.
Helgin fer í að búa til fleiri til að setja á rammana sem ég er búin með.

Þegar ég er búin að skila þessu af mér var ég að spá í að vera í fríi eftir vinnu fram að jólum.
Smá grín. Ég get ekkert verið í fríi, það er tómt rugl. Hefur ítrekað sýnt sig að þegar ég hef dauðan tíma eyði ég honum snöktandi að vorkenna mér vegna þess að ég á ekki herragarð með þyrlupalli, hesthúsum og sundlaug, butler, bílstjóra og Bentley - sem er rugl. It's clear to me now. Ef það væri eitthvað réttlæti í þessum heimi ættu næstum allir Bentley - nema þeir sem eiga Porsche Cayenne. It's the price you pay for having no taste whatsoever og þetta fólk á Bentley einfaldlega ekki skilið.
Það er satt - stendur í Biblíunni á blaðsíðu 3286, neðarlega, ég gleymi númerinu á versinu: "thou are not allowed to own a Bentley if thou possesses a pink slip for a Porsche Cayenne".
God has class.
Nei. Þegar ég er búin að skila þessu af mér mun ég finna mér eitthvað annað productive til að gera. Vaxa á mér fótleggina og svona. Klippa á mér neglurnar jafnvel.
Skúra.
Ég finn eitthvað.