www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jólaboð 2006
Þriðjudagur, 26. desember 2006

Þetta er í síðasta skipti sem ég fer í jólaboð þegar ég er á egglosi.

Þetta er líka í síðasta sinn sem ég fer með Ken meðvitundarlausan í boð. En það var ekkert annað hægt, amma vildi endilega hitta manninn og þetta er stórt hús og nóg af herbergjum með rúmum og rafmagni fyrir öndurnarvélina. Drasl sem fylgir þessum karlmönnum alltaf. Endalaust vesen. Amma talaði við Ken í tæpan klukkutíma, svoleiðis rakti úr honum garnirnar. Kom til mín og sagði að Ken vera áhugaverðan ungan mann - af góðum ættum og að ég megi alveg giftast honum. Meðvitundarleysi mannsins virtist fara gjörsamlega framhjá konunni. Svona fer ellin með fólk.

Nú vill svo skemmtilega til að nornin sem varðveitti uppskriftina að Finsen frómarsinum viðurstyggilega hrökk uppaf nýlega. Kafnaði víst á leðurblökuvængjum þegar hún var að drekka eitthvað nornaseyði. Ég hlakkaði til að fá eitthvað annað en frómarsinn en gleymdi að taka með í reikninginn hvað konurnar í fjölskyldunni eru úrræðagóðar. Þær fóru í andaglas um síðustu helgi og fengu helvítis uppskriftina uppgefna að handan. Þessi frómars er susmé eins og stöð tvö. Kominn til að vera. Classic. Þessar konur eru að reyna að drepa mig.

Það hafa bæst þrír heilir einstaklingar við fjölskylduna síðan í síðasta jólaboði. Úrval af litlum yndislegum börnum til að halda á. Þetta er rugl. Ég þarf að setja trukk í þessi getnaðarmál, þýðir ekkert að láta meðvitundarleysi setja strik í reikninginn, við Ken erum trúlofuð og maðurinn hefur skyldum að gegna.

Í raun er þetta mjög þægilegt, ég get alltaf gengið að honum vísum og eftir ég fann leið til að vekja þann part sem máli skiptir gengur þetta eins og í sögu. Auk þess finnst mér ágætt að vera ofaná. Líklega er heilinn stærsta kynfærið, maðurinn endist von úr viti eftir að hann hætti að fúnkera. Ég er svoleiðis örmagna stundum. Finnst undarlegt að ég sé ekki orðin ófrísk miðað við hvað ég er dugleg að heimsækja hann uppá spítala, á öllum tímum sólarhrings. Kannski er hann geislavirkur. Hann er samt ekki grænn eða sjálflýsandi, ég gáði, svo ég gefst ekkert upp fyrr en í fulla hnefana.

Ironic isn't it. If Ken is shooting blanks.

Gef þessu mánuð í viðbót. Ef ég verð ekki orðin ófrísk þá fer ég í Kringluna og stel mér huggulegu barni.

Þegar jólasveinarnir komu reyndi ég að lokka þá heim með mér og einn spurði actually hvort hann mætti taka mömmu sína með.

Come on. Ég er nú ekki til í hvað sem er.

--

Það er ekkert eins yndislegt og að fylgjast með nýbökuðum foreldrum með litlu börnin sín. Hef sérstaklega gaman af að horfa á pabbana og hvað þeir eru hrifnir af afkæmum sínum. Breaks my heart just a little.

Mig langar að lýsa því sem mér fannst mest vænt um að fylgjast með í jólaboðinu í ár. Hlutverkum karlmannana.

Eftir matinn er jólatréð dregið fram á mitt gólf. Það er karlmaður sem gerir þetta. The man of the house. Ég fylgdist með honum draga tréð varlega fram og hagræða rafmagnssnúrunni úr millistykkinu sem lá þvert yfir gólfið að trénu. Hann náði í litla mottu og setti yfir snúruna svo engin myndi detta og meiða sig.

Ef konurnar í fjölskyldunni hefðu séð um að leysa þetta af hendi ímynda ég mér að það hefði farið töluvert öðruvísi fram. Það hefðu minnst þrjár konur endað á að gera þetta - saman. Þvælst fyrir hvorri annarri basically. Kallað á víxl: Má ekki færa tréð aðeins lengra hingað? Er það ekki komið of nálægt borðinu? Hvað eigum við að gera við snúruna? Á endanum hefðu allir verið farnir að skipta sér að hvort tréð væri komið of langt hingað eða þangað og allir í jólaboðinu haft puttana í þessu.

Karlmenn vinna ekki þannig. Þeir eru ekkert að flækja málin eða ráðfæra sig við alla á staðnum. Þeir eru karlmenn.

Þegar hann var búinn að græja jólatréð lét hann konuna sína vita sem tók sér stöðu við tréð og kallaði á alla að koma að dansa í kringum jólatréð. Á meðan konurnar röðuðu sér í kringum tréð með börnunum, sum svo lítil að það er no way að þau hafi vitað hvað var að gerast, þá röðuðu karlmennirnir sér upp í öðrum enda stofunnar, vopnaðir myndbandsupptökuvélum af öllum stærðum og gerðum og á meðan konurnar og börnin dönsuðu í kringum jólatréð tóku karlmennirnir upp það sem var að gerast.

And that matters. Skiptir öllu máli. Það leynir sér ekkert hvað þeir hafa gaman að þessu ef maður horfir á svipinn á þeim. Sumir einbeittir, aðrir brosa að því sem þeir sjá í litla glugganum á myndavélinni. Allir virkir þáttakendur í atburðarásinni þó þeir séu ekki í fremstu víglínu og þeir eru að taka upp myndir af fólkinu sem skiptir þá máli. Varðveita minningar.

Karlmenn sjást miklu sjaldnar en konur á svona myndum, en þeir eru svo sannarlega á staðnum.

Svo kom að því að fara í smá mission. Not so impossible. Þori að veðja að þeir myndu aldrei viðurkenna hvað þeim finnst þetta gaman. Tveir karlmennirnir drógu sig útúr myndavélagerinu, annar opnaði útí garð. Svo hóstuðu þeir og sögðu "hva.. hvað er þetta", brostu, einn þeirra leit niður og svo var myndavélin höfð á loft aftur þegar jólasveinarnir ruddust inn og hinir karlmennirnir kváðu "hva.. hvað er að gerast?" rosa hissa.

Börnunum fannst þetta æðislegt og jólasveinarnir komu sáu og sigruðu. Allt skotið í bak of fyrir af karlmönnunum á svæðinu.

Kannski er ég skrítin, en mér fannst verulega vænt um að fylgjast með þessu.

Annars vona ég að börnin séu ekki scarred for life þó ég hafi gefið öðrum jólasveininum undir fótinn. Einhver kallaði "hefur einhver séð mömmu kyssa jólasvein?" og ég spratt upp úr stólnum og sagði "ég skal!"

Ég ætla að vera jólasveinn á næsta ári. Stúfur. Nema Stúfur þegar hann er búinn að láta breyta sér í konu og að lokinni extensive sálfræðimeðferð. Börnin munu aldrei bíða þess bætur - en - við búum bara í svo fucked up heimi og einhver þarf að undirbúa þau fyrir þennan hrylling.


| anna | 22:07 |
comments

lzuqykb lftxamckv xoljs sqygrlhu ozkyac tlsnzv tfjamuh

Nr. 1 | posted by: yaiv zmjplxedh | 27.02.2007 | 10:54:25 | [+] |

lzuqykb lftxamckv xoljs sqygrlhu ozkyac tlsnzv tfjamuh

Nr. 2 | posted by: yaiv zmjplxedh | 27.02.2007 | 10:56:43 | [+] |

lzuqykb lftxamckv xoljs sqygrlhu ozkyac tlsnzv tfjamuh

Nr. 3 | posted by: yaiv zmjplxedh | 27.02.2007 | 10:56:43 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web