Mig vantar svo eitthvað þægilegt ílát undir boostið mitt svo ég geti drukkið það í bílnum á leiðinni í vinnuna. Ferða-boost-glas. Verður að sjálfsögðu að vera töff.
En Alan. Ég finn ekki svona kæli glas fyrir boost. Geturðu útskýrt fyrir mér af hverju engin er að framleiða svona dót? Hvurslax heimi búum við eiginlega í? Af hverju finn ég ekkert svona? (Nema ógeðslega ljótt drasl sem mig langar ekki að eiga)
Nr. 6 | posted by: anna |
27.12.2006 | 22:07:55 | [+] |
Tja, ég var búinn að búa lengi í fyrirheitna landinu áður en ég fann rétta bollann. Er með einn fullan skáp af allskonar varíasjónum sem allar hafa þann galla að halda illa heitu eða að lokið lekur þegar maður hallar þeim óvart. Fann að lokum einn sem er með áletruninni Trudeau á botninum sem uppfyllir skilyrðin um að leka ekki, en einangraði illa. Það vandamál leysti ég hins vegar með því að taka hann í sundur og sprauta einangrunarfroðu inn í holrúmið.
Fullkomni bollinn er bara ekki til, maður verður að búa hann til sjálfur. Neðri linkurinn sýnir fyrirheitna bollann sem ég er einmitt að drekka síðdegiskaffið úr.
En þessi þarna á neðri linknum, myndi hann virka fyrir boost? Er gatið til að drekka úr nógu stórt? Þetta þarf ekkert að einangra svo vel, ég er aðallega að sækjast eftir glasi sem lekur ekki og verður ekki kalt á höndunum þegar ég held á því.
Ég og krakkarnir erum að missa okkur yfir willitblend.com, djöfull er þetta ógeðslega fyndið. Og ég er líklega búin að segja "krakkar, þið megið aldrei prufa að gera þetta" ca áttatíu sinnum og þau, frekar þreytt á mér, segja í kór "VIÐ VITUM ÞAÐ MAMMA".
Nr. 8 | posted by: anna |
27.12.2006 | 22:34:05 | [+] |
Já og ég á KitchenAid, er það ekki nóg?
Nr. 9 | posted by: anna |
27.12.2006 | 22:34:49 | [+] |
Nei, sennilega er gatið of lítið. En þetta Trudeau merki virðist gott í bollabransanum, þú gætir fundið eitthvað við þitt hæfi þarna.
Kitchen Aid er síðan ekki alveg að gera sig. Það er svo retró. Plús að ég held að KA ráði varla við "kúbein". Það er náttúrulega algert skilyrði.
Ertu að segja mér að ég þurfi að fá mér svona blender til að vera í the in crowd? Demit!
Er ekkert töff að vera retró lengur? hehe
Það er aldrei gefið upp hvað þetta blessaða gat er stórt og þar sem customer reviews fjalla alltaf um te og kaffi þá virðist grínlaust engum hafa dottið í hug að framleiða svona fyrir smoothies. Fólk er að nota hitabrúsa undir þá sem er bara mongo og engin nennir að eiga við það undir stýri.
Ég er samt að hugsa um að kaupa mér bollan sem þú ert að nota, það hlýtur að virka ef maður hefur þetta þunnt, heldurðu það ekki?
Nr. 11 | posted by: anna |
27.12.2006 | 23:03:42 | [+] |
Ég myndi ekki lofa því. Þetta er nefnilega þannig að lokið skrúfast niður á brík á bollanum og lokar þessu 100% þannig. Ég er ekki viss um hvað gatið er stórt þegar maður losar um það. En bollinn er fjandi góður fyrir alla heita drykki.
Sjálfur nota ég ódýran sjoppubolla fyrir krap og þannig kekkjótta drykki. Gatið er svo stórt að maður kemur puttanum niður í gegn. Hann lekur hins vegar hressilega ef maður hallar honum. Ekkert sem maður vill taka með sér í bílinn sumsé.
Þetta er merkilegt að enginn skuli hafa markaðssett sérstaka bolla fyrir svona drykki, það hlýtur að vera til einhvers staðar?
Þá hef ég ekkert við svona bolla að gera. Ég drekk ekki kaffi.
Já mér finnst ótrúlegt að engin hafi markaðssett svona smoothie travel mug. Ég er búin að leita mikið og hef ekki fundið neitt.
Nr. 13 | posted by: anna |
27.12.2006 | 23:53:07 | [+] |
Hæ hæ
ég þekki þig ekkert en les þig stundum af því mér finnst þú sniðug
eitt sem mér datt í hug, er reyndar ekki smart og því kannski ekki nógu sniðugt, en það er svona glas með loki og röri sem lekur ekki úr þótt því sé snúið á hvolf (allavega lítið)
hefur þú skoðað þannig?
Nr. 14 | posted by: GR |
28.12.2006 | 0:04:35 | [+] |
Ég verð bara að prófa og láta þig vita. Greip- og appelsínutrén svigna einmitt þessar vikurnar og tilvalið að skella nokkrum bátum í blenderinn - sem ræður því miður ekki við kúbein frekar en KA
Hálfslítra burstuðu stálbrúsarnir eru margir býsna stílhreinir og hreint ekkert mongo. Fara vel í hendi og halda bæði heitu og köldu. Segi ekki að þeir séu beinlínis töff, en ætletta sé ekki svona á pari við Zippó - laust við prjál, lítur ekki billega út og svínvirkar.
En hvað með gatið strákar GATIÐ. Er hægt að drekka boost úr þessum glösum? Er gatið fyrir innihaldið nógu stórt?
Nr. 23 | posted by: anna |
28.12.2006 | 19:28:10 | [+] |
Ein lausnin á þessu gatvandamáli er, eins og ég hef bent á, að eiga nógu góðan blender.
Skal senda þér rannsóknaniðurstöðurnar úr könnukönnuninni um leið og þær liggja fyrir. Það er bara svo kalsalegt (lesist skýjað) núna að ég hef mig ekki í að drekka klakadrykki í bili.