www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég er lítil hrædd Anna
Fimmtudagur, 21. desember 2006

Ég er rosalega hrædd í svona roki.

Ég er hrædd því ég óttast að svalahurðin fjúki upp og ef hún gerir það fýkur hún af, það er ekkert flóknara. Hún hefur fokið upp svo oft og brotnað en verið tjaslað saman aftur. Núna er hún á síðasta séns.

Ég er líka hrædd því einn glugginn hefur actually fokið af þessari íbúð í svona roki. Opnanlegur gluggi. Bara fauk útí hafsauga. Þarf náttúrlega ekki að taka fram að ég er með alla glugga lokaða og svalahurðina krækta.

Ég er samt hrædd.

Það er ekkert smá spes upplifun að vera inní íbúð þar sem vantar glugga þegar það er svona mikið rok. Svakalegur þrýstingur sem myndast og t.d. ekki hægt að opna hurðir nema spyrna í vegginn við hliðiná. Með báðum fótum.

Ég er ekki að grínast.

Vissu þið að það er hægt að lækna svona hræðslu á mjög einfaldan hátt?

Ef mér væru gefin lyf núna sem eyddu öllu adrenalíni úr líkamanum, þá myndi ég ekki verða hrædd næst þegar það kemur rok. Finnst ykkur það ekki magnað? Ef þú ert hræddur við eitthvað framleiðir líkaminn mökk af adrenalíni (to keep you alert) en ef adrenalíninu er eytt úr líkamanum.. þá reiknar líkaminn með að það sé engin ástæða til að vera hræddur og hættir að bregðast við áreiti af þessum toga með því að framleiða adrenalín. Í kjölfarið hættir þú að vera hræddur í þessum aðstæðum.

Mig vantar svona lyf.

NÚNA.


| anna | 16:19 |
comments

Eða horfast í augu við óttann. Í dag sá ég mann sem stóð úti í brjálaða haglélinu, opnaði faðminn á móti því skælbrosandi og lét rokið og haglið dynja á sér.
Mér fannst þetta sérstakt, en samt svolítið sniðugt.

Hann var að vísu staddur fyrir utan heilsubúðina á Klapparstígnum - kannski selja þeir svona lyf þar??? happy

Nr. 1 | posted by: lindablinda | 21.12.2006 | 18:08:12 | [+] |

Hvað er það versta sem getur gerst?
-Að svalahurðin fjúki út í buskann.
Gott og vel, hvað ætlarðu að gera þegar hún fýkur út í buskann?

Um leið og þú veist hvernig þú ætlar að bregðast við ef allt fer á versta veg, hverfur óttinn.

Nr. 2 | posted by: Eva | 21.12.2006 | 21:08:35 | [+] |

Ég sé fyrir mér að loksins sé að koma framhald fyrir barnabókina "lítil blá kanna"... sá það hins vegar ekki fyrir að bókin myndi heita "lítil hrædd Anna"

Nr. 3 | posted by: LangiSleði | 22.12.2006 | 8:35:21 | [+] |

Þetta er suðræna blóðið í þér sem gerir þetta að verkum. Dettu í víkinginn hræðstu eigi.

Nr. 4 | posted by: Barbie | 22.12.2006 | 11:39:25 | [+] |

Ja sko. Það sem ég er hrædd við eru hurðirnar liklega. Það sem gerist þegar gluggi brotnar og fýkur í burtu, karmur og alles, er að það skapast alveg gríðarlega mikill þrýstingur í íbúðinni mjög hratt og allar hurðir skellast aftur - á fimm hundruð kílómetra hraða. Það gerðist allavega síðast og þrýstingurinn í íbúðinni var þannig að maður fékk hellu fyrir eyrun.

Ég er mest hrædd um að a) einhver verði fyrir hurð ef þetta gerist og b) að t.d. krakkarnir lokist inni. Búin að analæsa þetta algjörlega allt fyrir löngu. Ég er t.d. ekkert hrædd við að standa úti í roki. Ég hata að vera inni í illa smíðaðri íbúð í roki. Það er mín fóbía.

Annars gekk þetta fljótt yfir í gær. Svakalega varð ég samt hrædd í mestu kviðunum.

Nr. 5 | posted by: anna | 22.12.2006 | 15:44:41 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web