www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Allt eins
Föstudagur, 15. desember 2006

Ég hef tekið eftir því að allir karlmenn sem mér þykir vænt fara frá mér - og ef þeir gera það ekki.. þá drep ég þá, sem er einmitt það sem ég hef verið að reyna að gera undanfarna daga við Ken - án teljandi árangurs.

Ken kom heim helsærður á laugardagsnóttina og ég mátti finna til allar tangir á heimilinu til að ná þessari kúlu útúr lærinu á honum, djöfuls viðbjóður. Ógeðslega vond lykt af blóði þegar því er dreift svona útum allt, mig langaði að gubba. Næst ætla ég að finna mér kærasta sem reynir að hafa sem mest af blóðinu úr sér undir húðinni. Má alveg vera á einum stað, segi það ekki, en undir húðinni thank you very much.

Mér finnst þetta ekki óraunhæf krafa.

Ég gerði Ken grein fyrir því á meðan ég potaði með töngunum ofaní lærið á honum og notaði vasaljós til að reyna að sjá ofaní sárið, að ég væri sko engin florence fokking nightingale og að þetta væri klassísk hegðun karlmanns að koma heim, blæða útum allt, vekja mig og ætlast til þess að ég framkvæmi aðgerð sem tekur venjulegt fólk fleiri ár í skóla að læra að gera!

Nei. Þá fór hann að gráta. Ég sver.. veikir karlmenn eru eitt af Gods blunders. Djöfull geta margir veikir karlmenn verið ógeðslega miklar væluskjóður. Ái, æji ég meiddi hann svona og hinsegin og þetta var svo vont og BÚ-FOKKING-HÚ. Ræfill. Ég ákvað að reyna að þagga niðrí honum með því að fylla hann og náði í Bacardi sem ég er búin að eiga uppí skáp í tvö ár, lét hann taka tvo sopa og svo helti ég smá í sárið. ÉG GERÐI ÞAÐ TIL AÐ SÓTTHREINSA, hef oft séð það gert í bíómyndum og ég átti ekkert própanól. Margeir drekkur það alltaf, rónadvergur sem þetta er. Hann væri búinn að drekka allt áfengið úr vínskápnum ef ég væri ekki með hann læstann. Nema.. þegar ég helti Bacardi-inu ofaní sárið argaði Ken og hrópaði á hjálp. Mér brá alveg rosalega og það var þess vegna sem ég braut flöskuna á hausnum á honum. Hvernig á maður að geta unnið við þessar aðstæður? Dr. House þarf ekki að sitja undir svona rugli.

Það er ógeðslega erfitt að ná svona kúlu sem er föst í beini. Mér gekk ekkert með Europris tönginni, gat víkkað sárið smá með grilltönginni og en ekki nóg til að ég gæti komið naglbítnum alveg ofaní sárið - sem hefði náð þessu, ég efast ekkert um það. Þá prufaði ég að fara með fingrunum ofaní sárið, gæti trúað að það sé mjög svipað og að stinga fingrunum ofaní.. já ofaní blóðugt sár á manni. Það var nákvæmlega þannig. Fann kúluna en ég náði ekki nógu góðu taki á henni, enda hafði ég ekki mikið svigrúm til að athafna mig þarna og blóðið var alltaf að spýtast á vasaljósið og gleraugun mín þannig að ég sá ekkert. Það er ekki gott að fá blóð uppí nefið, bara svo þið vitið það.

Fattaði svo að binda um lærið efst til að minnka blóðflæðið og á endanum náði ég kúlunni með því að bora hana út með borvélinni minni. Þurfti að nota 12 mm steinbor. Átti ekki stál í þessari stærð og svo var ég líka smá hrædd um að ég myndi flísa uppúr kúlunni ef ég notaði þannig. Þegar ég var búin að þrífa Ken mátti ég drösla honum uppí rúm og þá átti ég eftir að þrífa allt baðherbergið og ganginn, blóðslóðin eftir hann útum allt, vesenið á þessum karlmönnum er alveg ó - trú - legt!

Eins og þetta væri ekki meira en nóg fann ég sundurskotna fugla á borðstofuborðinu og fiður útum allt! Ég henti þeim nú bara niður af svölunum.

Ég fór ekki að sofa fyrr en snemma á sunnudagsmorguninn og það var ekki fyrr en ég vaknaði seinnipartinn sem ég fattaði að ég hefði geta látið Ken blæða út inná baði og málið hefði literally verið dautt!

Það er svo auðvelt að vera vitur eftirá.

Ken mundi ekkert eftir því að ég rotaði hann þegar hann komst til meðvitundar og hélt áfram að væla eins og svo mörgum veikum karlmönnum virðist eðlislægt að gera. Það var þá sem ég ákvað að eitra fyrir honum, enda treysti ég mér ekkert til að stinga hann eða skjóta. Það er svo subbulegt og ég nýbúin að skipta á rúminu svo ég náði í terpentínu og bjó til heitt kakó úr henni. Hef grun um að Ken hafi fundið bragðið af terpentínunni, hefði átt að búa til myntute þegar ég hugsa útí það, því hann spurði "is this terpentine with creme?" - og ég er þekkt fyrir að eiga í erfiðleikum með að ljúga að mönnum sem ég elska svo ég sagði "já" - óvart.

Þá spurði hann hvort við ættum að fara til ráðgjafa.

Hann spurði mig aftur eftir að ég hrinti honum niður stigann í gær og svo vældi hann eins og smástelpa með fléttur af því hann fékk smá blóðnasir.

Það sem - á - mig - er - lagt.

Eins og þetta sé ekki nóg - þá FREMUR IGOR SJÁLFSMORÐ bara vegna þess að ég er að fara að giftast Ken! Þvílíkt drama alltaf hreint. AF HVERJU GAT HANN EKKI REDDAÐ MÉR FYRST SVONA PÓLÓ TVÖHUNDRUÐ OG TÍU GEISLAEFNI!

Allt eins. Allt eins.

Djöfull vælir þessi maður endalaust. Ekkert nema vanþakklætið. So what þó hann sé með sár á lærinu. Á tíu stöðum. Ég þurfti nokkrar tilraunir áður en ég gat borað kúluna út, það er ekki eins og ég hafi vitað hvað ég var að gera for christ sake!


| anna | 10:31 |
comments

Hentu kauða bara fyrir strætó. Besti bounce effektinn næst ofan af göngubrúnum við Skeifuna og Kringluna. Passaðu þig á að það sé hraðleið ( S2,3,5,6 ) sem sé á ferðinni evil

Nr. 1 | posted by: Þór | 15.12.2006 | 11:27:07 | [+] |

Grenjandi karlmenn eru ÓÞOLANDI. Losaðu þig við hann. Geturðu ekki fengið Ken til að gera þetta sjálfan, eins og Igor. Bloggaðu um að þú ætlir að giftast einhverjum öðrum. Gerðu eitthvað. Bara eitthvað.

Nr. 2 | posted by: Fríða | 15.12.2006 | 11:28:02 | [+] |

Mér þykir leitt að segja þetta, eftir allt ómakið, en ég held að það sé ekki endilega best að plokka kúlur svona út. Held það sé líka Hollywood mýta.

Nr. 3 | posted by: Kalli | 15.12.2006 | 11:35:40 | [+] |

Nei ég veit það núna, það er best að bora þær út.

Grenjandi karlmenn. Þvílíkt turnoff.

Nr. 4 | posted by: anna | 15.12.2006 | 11:40:52 | [+] |

Reyndar merkilegt að hugsa til þess...

Kvenfólk kvartar sáran undan því að karlmenn sýni engar tilfinningar og byrgi allt inni. Þeir séu þessvegna ómögulegir og harðbrjósta kvikindi sem eigi helst ekki að vera til.

Svo loksins þegar þeir sýna einhverjar tilfinningar (þó það sé ekki nema vorkenna sjálfum sér), þá eru þeir veikgeðja aumingjar og vælukjóar sem eigi helst ekki að vera til.

Það er aldrei hægt að gera ykkur til geðs, er það nokkuð ?

(that's a rhetorical question)

wink

Nr. 5 | posted by: Þór | 15.12.2006 | 13:16:40 | [+] |

Ég kvarta aldrei yfir því að karlmenn sýni ekki tilfinningar eða séu harðbrjósta. Enda er það ekkert mín reynsla. Hinsvegar þoli ég ekki vælukjóa... eða væluskjóður. Sérstaklega ekki rígfullorðið fólk sem vælir. Það er sko ekki það sama að vera sígrenjandi og að kunna að tjá tilfinningar.

Ergo: Það passar ekki að það sé ekki hægt að gera "okkur" til geðs.

Nr. 6 | posted by: Fríða | 15.12.2006 | 16:46:00 | [+] |

rhetorical - adj.

concerned with effect or style of writing and speaking; "a
rhetorical question is one asked solely to produce an
effect (especially to make an assertion) rather than to
elicit a reply"

wink

Nr. 7 | posted by: Þór | 15.12.2006 | 17:15:54 | [+] |

En ef ég var nú bara að svara Önnu? smile

Þór náttúrulega verður að setja þetta "rhetorical" þarna til að þurfa ekki að standa fyrir máli sínu hihi Varla var meiningin að loka svarhalanum og drepa niður allar frekari umræður.

Já, og ég þoli ekki grenjandi karlmenn hafi það ekki komið nægilega skýrt fram áður

Nr. 8 | posted by: Fríða | 15.12.2006 | 18:13:10 | [+] |

Eitt vel staðsett högg með bananasneiði á efstu hrygjarliðina og málið er dautt. Sem og Ken. Ef ekki, gleymdu ekki á þú átt vini sem vilja þér vel hjá ÍTMAFÍS.

Nr. 9 | posted by: DonPedro | 15.12.2006 | 19:36:33 | [+] |

OG það er ekkert mál að skilja konur. Skil ekki þetta kjaftæði. Menn sem geta einhendis sett upp flókna servera hljóta að geta skilið konur. Þær eru bara örlítið eitt flóknari en menn, og menn eru eins flóknir og ullarsokkar. Kommonn.

Nr. 10 | posted by: DonPedro | 15.12.2006 | 21:39:58 | [+] |

Af hverju taka þá konur við vælandi karlmönnu ? Ég hef aldrei alveg skilið það doubt

Nr. 11 | posted by: Hugz | 15.12.2006 | 22:54:09 | [+] |

Serverar eru bara grín á við konur .... melodramatic

Nr. 12 | posted by: Hugz | 15.12.2006 | 23:01:29 | [+] |

Karlmenn eins flóknir og ullarsokkar? Veistu hvað ullarsokkar eru flóknir? melodramatic

Hvað er ÍTMAFÍS? doubt

Sammála Fríðu og konur taka ekkert við vælandi karlmönnum. Hver segir þér svona vitleysu Hugz?

Nr. 13 | posted by: anna | 16.12.2006 | 1:49:42 | [+] |

ÍTMAFÍS stendur auðvitað fyrir Ítalska Mafían á Íslandi ohf.

Konur taka við vælandi karlmönnum með aumingjahrolli, og þykjast hlusta á þá á meðan þær velta fyrir sér skemmtilegum leiðum til að losna við þá.

Að karlmaður sýni tilfininngar sínar er eins og áður hefur komið fram hér ekki best leyst með því að brynna músum yfir kvöldmatnum.

Nr. 14 | posted by: DonPedro | 16.12.2006 | 8:47:47 | [+] |

Duh Pedro, ég get verið svo steikt í hausnum stundum, of course! smile

Já og þetta er rétt hjá þér. Karlmenn eiga bara ekkert að vera vælandi!

Nr. 15 | posted by: anna | 16.12.2006 | 12:33:15 | [+] |

Ekki að ég vilji skipta mér neitt af umræðunni hjá þér og vinum þínum, en ég er á því að maður eigi að jafnaði að aðstoða ef maður getur/nennir.

Þú getur fengið polóníum 210 í neytendaumbúðum á slóðinni að neðan. Traust fyrirtæki.

Þeir senda reyndar aðeins innan USA en þú getur látið ShopUSA.is hafa milligöngu.

http://www.unitednuclear.com/isotopes.htm

Nr. 16 | posted by: Árni Valur | 17.12.2006 | 15:54:31 | [+] |

lol

Snillingur!

Nr. 17 | posted by: anna | 17.12.2006 | 17:02:50 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web