www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fréttaskýring
Sunnudagur, 26. nóvember 2006

Af hverju tala ég um "félagi dauður" í stað þess að segja Félagið Auður?

Það eru nokkrar staðreyndir í því máli.

Dag einn sat Anna í þægilega stólnum sínum á skrifstofunni þegar faxvélin spýtti út úr sér einni blaðsíðu.

Á þessari blaðsíðu var umsókn um lénið "felagidaudur.is"

Anna tók upp umsóknina og sá að það var einhver einstaklingur að sækja um þetta lén, lénið felagidaudur.is. Önnu fannst þetta undarlegt. Ekki gat þetta verið minningarsíða fyrir einhvern látin félaga, því þú talar ekki um að félaginn sé "dauður" - nema þú sért smá skrítin í höfðinu. Anna vildi nú samt ekki útiloka að mögulega væri hún skrítin í höfðinu sem olli því að hún sá bara "Félagi dauður" út úr þessu léni. Hún fékk því álit annarra starfsmanna, en allir sem Anna spurði voru sammála um að þarna væri einhver að stofna lénið Félagi dauður. Punktur is.

Fólki fannst þetta spes.

Klukkutíma eftir að umsóknin barst hringdi síminn. Kona á hinni línunni spurði Önnu hvort hún hefði móttekið umsókn um lén fyrir Félagið Auður.

Nú kom sér vel hvað Anna er dugleg og fljót að hugsa, og hún sagði já - en benti konunni jafnframt á að hún ætti kannski aðeins að endurskoða nafnið þar sem það væri ekki nokkur einasta leið að átta sig á að þarna væri á ferðinni Félagið auður - allir sem sjá þetta lesa "félagi dauður".

No kidding.

felagidaudur.is

Eftir stutta þögn fór konan að skellihlæja og bað Önnu að bíða aðeins með að úthluta léninu.

Seinna um daginn spýtti faxvélin útúr sér annarri blaðsíðu - umsókn um lénið felagid-audur.is.

Nú hafa örlögin hagað því þannig til að Anna er orðin formaður í félaginu og hennar fyrsta verk var að setja upp nothæfa heimasíðu fyrir félagið - í CSS, mind you.

Það er ironic, en margir félagsmenn virðast dauðir miðað við fundarsókn. Líklega er það vegna þess að félagsmenn eru konur sem eru flestar að reka fyrirtæki og kjósa því oft að eyða þeim litla frítíma sem þær eiga í að hugsa um börn og eiginmenn - sem er auðvitað tómt rugl. Áhersla nýrrar stjórnar verður að vekja félagsmenn til lífsins aftur - hvernig stjórnin fer að þessu er óljóst en í janúar munum við bjóða uppá námskeið í fyrstu hjálp hjá Rauða krossinum.

Nei smá grín en á fyrsta stjórnarfundinum með nýrri stjórn missti ég mig gjörsamlega úr hlátri þegar við vorum að ákveða hvaða athafnakonur við ætluðum að fá til að kynna starfsemi sína í vetur því ein úr hópnum talaði um konu á Selfossi - sem framleiðir hnakka.


| anna | 23:00 |
comments

laughing laughing laughing ááái, þetta er sárt...

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 26.11.2006 | 23:47:33 | [+] |

laughing

Nr. 2 | posted by: igor | 26.11.2006 | 23:56:23 | [+] |

schtundum er erfit að vera svona lesfatlaður - að þurfa alltaf að vera að leiðrétta beigingarvillur og annað tilfallandi við lestur á textum. Get ekki orða bundist núna, því þessi flotta síða hjá Félaginu Auði er morandi í (klaufalegum) villum í annars ágætum texta. "Morandi" er kannski heldur djarft til orða tekið, en nóg til að stinga mann í augum. Er einhver sem les yfir textana sem fara inn á síðuna? If so, your first work as Chair(wo)man should be cutting of some dead branches (ouch, kannski frekar annað og mildara orðalag hér...?).

Svo minnir merki félagsins mig óþægilega á merki SÁÁ. Kannski bara ég... embarassed

Samt, til hamingju með formennskuna!! Nú fara hlutirnir að gerast what happy

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 27.11.2006 | 1:20:34 | [+] |

Er ég leiðinleg eða er ég leiðinleg doubt

Nr. 4 | posted by: Atviksorða-Anna | 27.11.2006 | 1:22:02 | [+] |

Hvernig framleiðir maður hnakka? Ég meina... við erum að tala um framleiðslu en ekki breytingar...

Nr. 5 | posted by: Kalli | 27.11.2006 | 6:07:14 | [+] |

til hamingju með nýja embættið happy

gott þetta með hnakkana, vona að hér hafi verið um að ræða söðlasmið (frekar en eitthvað afar krípí) nerd

Nr. 6 | posted by: baun | 27.11.2006 | 9:07:32 | [+] |

Félagi Dauður - félag piparsveina sem hafa ekki fengið það í meira en áratug. ( Insert whitty comment of your choice here )

Nr. 7 | posted by: Þór | 27.11.2006 | 13:25:49 | [+] |

haha ég var langt komin í gegnum kommentin þegar ég fattaði að konan væri ekki hárgreislukona.. toungue

Nr. 8 | posted by: meinvill | 27.11.2006 | 15:43:31 | [+] |

Very good site. Thank you.
meridia discount

Nr. 9 | posted by: cheapest meridia | 14.01.2007 | 0:55:32 | [+] |

Very good site. Thanks.
hoodia gordonii

Nr. 10 | posted by: hoodia gordonii | 14.01.2007 | 7:35:42 | [+] |

Það munaði minnstu að ég yrði félagi dauður, þetta var svo fyndið að ég þurfti að snúa mér undan skjánum til að ná andanum. drunk

Nr. 11 | posted by: Yngvi | 15.01.2007 | 23:35:21 | [+] |

Very good site. Thanks!!!
generic levitra

Nr. 12 | posted by: generic levitra | 17.01.2007 | 15:07:28 | [+] |

Very good site. Thanks!!!
generic levitra

Nr. 13 | posted by: generic levitra | 17.01.2007 | 15:07:37 | [+] |

Very good site. Thank you!!!
buy levitra online

Nr. 14 | posted by: buy levitra online | 17.01.2007 | 20:49:22 | [+] |

Nice site. Thanks!
southwest airlines fare

Nr. 15 | posted by: southwest airlines fare | 18.01.2007 | 5:05:44 | [+] |

Nice site. Thankssmile
southwest airlines tickets price

Nr. 16 | posted by: southwest airlines tickets price | 18.01.2007 | 6:10:16 | [+] |

Nice site. Thankssmile
southwest airlines tickets price

Nr. 17 | posted by: southwest airlines tickets price | 18.01.2007 | 6:10:32 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web