www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Æ...
Laugardagur, 04. nóvember 2006

Hann er svo mikil dúlla þessi maður. Haldiði að hann hafi ekki komið með blóm handa mér.

Ég er búin að fyrirgefa honum allt og ætla að baka smákökur.


| anna | 15:53 |
comments

Af mbl.is:

Evrópumetið í innanhúss mislyndi var slegið á leikvangi í vesturbæ reykjavíkur fyrr í dag. Það var Anna Laufey Helgadóttir sem bætti sig eigið met um mjög mörg elo-stig. Anna stefnir á Olympíuleikana í London.

Nr. 1 | posted by: lifur | 4.11.2006 | 16:39:28 | [+] |

ERTU AÐ SEGJA AÐ ÉG SÉ MISLYND?

Mér þykir svon vænt um þig Lifur. Þú skilur mig svo vel.

HÆTTU SVO AÐ DISSA MIG FYRIR AÐ VERA MEÐ DRAMA!

Nr. 2 | posted by: anna | 4.11.2006 | 16:52:49 | [+] |

ó þú lygni hafflötur...

Nr. 3 | posted by: lifur | 4.11.2006 | 17:06:14 | [+] |

Lygni hafflötur já. Ertu að segja að ég sé blaut? Þú veist að ég drekk ekki.

Nr. 4 | posted by: anna | 4.11.2006 | 17:10:49 | [+] |

með samanbitna kjálka og perlandi svita á efri vör tekst mér að sleppa öllum "blaut" bröndurum sem þjóta um visið heilabú mitt öskrandi "pick me! Pick me!".
Ertu ekki farin að drekka aftur víst þú ert hætt á bólubananum? Það er hverri konu mikil prýði að drekka, helst óhóflega nokkrum sinnum í viku.
Þú ert pottþétt ómótstæðileg á átjánda vodkastaupi.

Nr. 5 | posted by: lifur | 4.11.2006 | 17:24:06 | [+] |

Laufey?

Nr. 6 | posted by: Eddið | 4.11.2006 | 18:03:32 | [+] |

Hvaða kona er ekki ómótstæðileg á 18. vodkastaupi?

Eða... meintirðu að Anna væri á 18. staupi? Konur eru eiginlega frekar mótspyrnulitlar en ómótstæðilegar þá...

Nr. 7 | posted by: Kalli | 4.11.2006 | 18:32:54 | [+] |

rétt kalli, ekkert er jafn sjarmerandi og "dautt deit"!

Nr. 8 | posted by: lifur | 4.11.2006 | 18:34:48 | [+] |

Þá er nú alveg eins hægt að fara í Hagkaup og deita kótelettu...

Hmm... og rasp pakka...

Hmm... það gæti orðið ágætis deit... amk fyrir þann helminginn af deitinu sem ekki lendir í bakarofninum

Nr. 9 | posted by: Þór | 4.11.2006 | 19:58:35 | [+] |

Mmmmm... ég hef átt góð deit við kótilettur.

Nr. 10 | posted by: Kalli | 4.11.2006 | 21:01:46 | [+] |

Kalli. Á svona kótilettudeitum, hvort finnst þér betra að þú sért á kótilettunum eða hún?

Lifur. Þetta komment var sérstaklega tailor made til að framkalla blaut brandara á færibandi. Hvernig gastu brugðist mér svona?

Ég nenni ekki að drekka Lifur, ég veit að þetta hryggir þig og auðvitað er það bölvaður aumingjaskapur og sérhlífni að láta svona. En þetta er ég. Ekkert nema frekjan og yfirgangurinn, hugsa ekkert um annað fólk í kringum mig.

Skepna.

Nr. 11 | posted by: anna | 6.11.2006 | 10:24:42 | [+] |

Ég skil ekki? Kótiletturnar eru deitið...

Nr. 12 | posted by: Kalli | 6.11.2006 | 18:07:03 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web