www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Til tunglsins.. .trallalla
Miðvikudagur, 01. nóvember 2006

Já þetta var smá premature "I'm back" þarna áðan.

Ég var komin aftur - en movie hall of fame og gestabókin farin á límingunum en nú er búið að negla þetta niður. Þetta var samt mjög áhugaverð villa og ég get ekki, for the life of me, skilið hvernig hún kom til. Hafði að gera með template sem eru bara alls ekkert inní kerfinu lengur. Draugasíður líklega. Þeim hefur verið eytt með hjálp WD-40+.

Pollið mitt er komið aftur á forsíðu og þegar pollið er komið þá veit maður að nú hefur allt farið vel.

Flutningurinn er sumsé formlega yfirstaðinn og allt á að virka eins og smurt - nema kommentin sem Tumi sendir inn. Skil það nú ekki, þetta er ekki persónulegt enda hef ég mjög gaman af kommentunum sem hann sendir inn.

Tumi. Þetta er fyrir þig:

Þú reyndir allt,
til þess að ræða við mig.
Í gegnum tíðina
ég hlustaði ekki á þig.

Ég gekk, áfram minn veg,
niður til heljar hér um bil.

Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil..


| anna | 21:17 |
comments

Dæsöss hvað allt er dularfullt á þessari slóð.

Nr. 1 | posted by: parisardaman | 1.11.2006 | 23:17:23 | [+] |

Hmmm (ekkert lifrarnefkjaftæði, bara hmmm, það er alveg nóg).
Þetta er voðalega skrítið. Þegar kommentavandræðin voru sem mest var afar misjafnt hvað skilaði sér og hvað ekki - a.m.k. á þessum enda samskiptanna. T.d. voru mín komment við færsluna "Backup is ready" ýmist úti eða inni, og það sama gilti um önnur. Um tíma var fyrsta - og lengsta kommentið inni, svo hvarf það alveg, lengi vel. Birtist svo á ný næsta dag, á eftir kommentinu sem það var á undan daginn áður. Eftir að þú svaraðir svaraði ég enn - og bætti við pé essi - og bar þá svo undarlega við að allt þar á milli hvarf. A.m.k. hérna megin, eins og ég segi. Á síðunni stóð að kommentin við færsluna væru orðin 19 þegar þarna var komið sögu, en þegar ég smellti á kommentin birtust aðeins 14, hvar af þau fjögur síðustu voru frá mér komin - án nokkurra millikommenta, þannig að þetta meikaði engan sens. Þannig að í minni tölvu hurfu annarra manna komment en hjá þér hurfu mín? Ef þetta er ekki vírd, þá hef ég algjörlega misskilið hugtakið vírd...
En þar fyrir utan - kærar þakkir fyrir kveðjuna. Maggi Eiríks er snillingur og Pálmi líka. Ég var einmitt að kaupa þessa klassík á diski (já, sorrí, en ég er svo gamaldags að ég er enn svag fyrir diskum og umslögum og spilurum sem ekki eru 100% digital - á hvorki ipod né mp3 af neinu tagi) fyrir nokkrum vikum síðan og hef blastað honum ótal sinnum í mínum gamaldags græjum (svona geislaspilari og magnari og stórir hátalarar, manstu?) eftir það. Tilviljun? Já.
En ég er vissulega upp með mér, finn óneitanlega til mín, belgi út kassann og dreg inn kviðinn, eftir að hafa fengið sérlega kveðju frá háæruverðugri bangogolufsendömunni sjálfri (flott græja, btw) og tek hana til merkis um að þú sért meðvituð um í hvað stefnir ef þú endurskoðar ekki samband þitt við þennan - já, - saynomore, saynomore, winkwink. Gæti annars misst mig í svívirðingunum sem eru on the tip of my - fingers. En þú ert augljóslega búin að átta þig á því að þú ert komin langleiðina til heljar í þessum selskap sem þú heldur í dag og það gleður mig mjög að þú skulir vera farin að sjá, vita og skilja hvað ég er að reyna að gera fyrir þig. En svona til öryggis þá er rétt að ég tali skýrt:
ANNA! Þeir bræður/frændur, Bang og Olufsen, eru hverri konu hollir. Það er Ken ekki. Það hefur verið tölfræðilega sannað í rannsókn sem gerð var af doktorsnemum í lífeðlisfræði við UCLA haustið 2003, en niðurstöðum þeirrar merku rannsóknar var stungið undir stól vegna þrýstings frá Mattel-fyrirtækinu alræmda, sem í dag stendur í stóraslag við WDC og fleiri um heimsyfirráð. Slagur WDC og Mattel á þessu sviði - sem einmitt hófst skömmu eftir að rannsóknarniðurstöðunum var stungið undir alræmdan stólfjandann - er auðvitað hálf kaldhæðnislegur og sannar bara hið fornkveðna - er bara stef úr Faust: Nú kyrja þeir forsvarsmenn Mattel, sem á annað borð kunna þýsku (einn og hálfur forsvarsmaður, sem sagt): Die Geister die ich rief ...
Við í STBAAESKÚKSPÁDS (Samtök til bjargar allt annað en saklausra kvenna úr klóm samviskulausra plastgeldinga á dýrum sportbílum) - hei, ég veit að þetta er ekki sérlega þjált, but what can you do? - við gleðjumst yfir þessari vonarglætu sem kviknað hefur og höldum ótrauðir áfram björgunaraðgerðum uns yfir lýkur - uns þú ert annaðhvort hólpin eða BARHOR(beyond all reasonable hope of rescue - hei, ég sé ekki um nafngiftir og skammstafanir í þessu apparati en læt það yfir mig ganga vegna göfugs markmiðs samtakanna).
Og hvað Margeir varðar þá var hann ýlfrandi fyrir utan hjá mér í morgun, um tíuleytið, en hver vaknar svo snemma? Fullt af fólki, ok., en ekki ég. Kastaði í hann gömlum nærbuxum, óþvegnum. Ekki mínum samt, á bara þrennar. Hann þagnaði, ég lagðist á hitt eyrað, þetta sem hann reif ekki af mér í gær. Hef ekki séð hann eða heyrt síðan, er hann ekkert farinn að dúkka upp þarna hjá þér ennþá?
Annars er ekkert - nákvæmlega ekkert - að marka það sem ég er að bulla.
En ég þarf svosem ekki að segja þér neitt um það.
Blglllhvfrrwwsturfff...
Nei, þetta er ekki enn ein skammstöfunin. Bara tjáning á því sem fór í gegnum huga mér akkúrat þegar ég skrifaði það. Só jú sí ... æm lost.

Nr. 2 | posted by: Tumi | 2.11.2006 | 3:47:55 | [+] |

Þú ert svo sætur Tumi. Þú ert afbrýðisamur útí Ken.

DEATH TO MATTEL!

..to be con..

Nr. 3 | posted by: anna | 2.11.2006 | 9:34:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web