Mánudagur, 06. nóvember 2006
Þá er ég að fara á aðalfund hjá félagi dauður þar sem ég mun taka við stjórn. Til að tryggja að þetta valdarán fari friðsamlega fram mun ég hafa með mér fjórtán vopnaða menn með sólgleraugu og ógeðslega flottar húfur.
You gotta be prepared.
Annars á ég von á að þetta fari allt friðsamlega fram, þó þetta séu mest konur þarna. Að sjálfsögðu munum við halda áfram því góða starfi sem félagið hefur stundað hingað til en einnig hef ég ákveðið að í minni stjórnartíð verði sett upp nothæf heimasíða fyrir félagið. Ég segi nothæf því notendaviðmótið á þessari er svo vonlaust að það gerir hvaða einustu manneskju gráhærða.
Má ekki við þannig rugli.