www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
ÞEIR STÁLU DÓTINU MÍNU!
Laugardagur, 04. nóvember 2006

Það er búið að stela kjólnum mínum með vængjunum og öðrum skónum sem ég var í á grímuballinu!

Djöfull er ég ógeðslega reið. Já ég var að ýkja í morgun, smá, en það var bara því ég var svo fúl útí Ken og innbrotsþjófana. Hann drap ekki manninn í morgun, hann bara kýldi hann og svona, danglaði aðeins í hann með kylfunni. Þess vegna kom blóð og smá heili á buxurnar mínar, við settum manninn í bað og hann er allur að hressast. Missti bara minnið og mér finnst það gott á hann.

Vona að hann eigi elskandi fjölskyldu einhverstaðar sem hann er búinn að gleyma OG FINNUR ALDREI AFTUR.

PAKK!

Hinn fávitinn TÓK KJÓLINN MINN OG VÆNGINA! Og einn skóinn. Vissi alltaf að það borgaði sig að geyma þá í sitthvoru lagi - þetta er ekki vegna þess að ég sparkaði þeim af mér frammi og veit ekkert hvar þeir lentu, þetta var allt með ráðum gert. Lögreglan kom hingað áðan og tók skýrslu og Ken borgaði þeim fullt af peningum þannig að þetta verður sett í forgang. Létum þá taka hitt fíflið með sér. Já og ég var aðeins að ýkja, íbúðin er ekki alveg ónýt. Ken braut glas sem var á stofuborðinu - EN ÞAÐ VAR SAMT ALGJÖR ÓÞARFI!

Djöfull er ég svakalega reið. Ég saumaði þennan kjól sjálf sérstaklega fyrir þetta grímuball og vængirnir voru sér innfluttir frá Bandaríkjunum. Kostuðu MORÐFÉ! -eða.. tíu þúsund - ÞAÐ ER SLATTI!

Ken finnst ég ekki taka þessu vel og vænir mig um að vera með drama.

DRAMA JÁ!

Var það nú ekki típískt? Alltaf sama sagan, maður má ekki segja neitt, þá er það orðið drama. Ég var hrædd við hann í morgun og þið væruð það líka ef þið hefðuð séð hann í þessum náttbuxum. Alveg klárt mál.

Ég er ekki með drama, þetta ER drama og ég er bara að benda á hið augljósa. ÞAÐ ER DRAMA ÞEGAR ÞAÐ KOMA MENN HEIM TIL ÞÍN ÞEGAR ÞÚ ERT SOFANDI OG STELA KJÓLNUM ÞÍNUM OG VÆNGJUNUM. Þetta hafa verið klæðskiptingar - well. . the joke is on them, þeir komast aldrei í þennan kjól - aldrei - og ekki þessa vængi heldur og ekki skóna heldur. ÞETTA VAR HANDMÁLAÐUR SKÓR - ÉG BJÓ HANN NÆSTUM ÞVÍ TIL FRÁ GRUNNI!

Drama hvað. Ken ætti að fá medalíu núna, hann er að hegða sér eins og klassískur karlmaður af verstu sort. Drama endalaust, tautandi. Hann forðaði sér áðan OG ÉG VONA AÐ HANN KOMI ALDREI AFTUR!


| anna | 15:28 |
comments

Nú ertu að ýkja. Þú vonar að hann komi ekki fyrr en um kaffileytið.

Nr. 1 | posted by: Eva | 5.11.2006 | 13:58:50 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web