Fimmtudagur, 30. nóvember 2006
Á stjórnarfundi anna.is seinnipartinn í dag var ákveðið að hrinda í framkvæmd fyrsta lið í gagngerum skipulagsbreytingum, en svo segir í fundargerð:
"Vegna tímaskorts og áhugaleysis hefur stjórnin ákveðið að hætta að halda úti liðnum "song of the week". Verður tengillinn ásamt öllu efni fjarlægður innan 24 klukkustunda".
Kliður fór um sali Alþingis þegar fréttist af þessu máli spurðust út, en "song of the week" var fyrsti alvöru efnisþáttur síðunnar og birtist á þeim tíma sem anna.is var birt undir nafninu badabing.is. Song of the week er því eini liðurinn sem hefur verið á anna.is frá upphafi. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagðist harma þessar fréttir og hefur mælst til þess að fólk sýni samstöðu og hafi fimm klukkutíma þögn á laugardaginn frá klukkan fimm um morguinn í minningu "song of the week".
Þýtt af vef Reuters.