Miðvikudagur, 01. nóvember 2006

Ef ég hefði ekki notið aðstoðar góðra manna og fengið kommentin aftur, þá hefði ég - og allir þeir sem hafa skilið spor sín eftir á síðunni - samtalst tapað fjórtánþúsund og fjögurhundruð kommentum. Ég tók þetta screenshot í gær, talan núna er 14409. Verð ég ekki að gera einhvern andskotann þegar við náum uppí fimmtánþúsund? Skjóta Margeiri útí geim? Nei bara smá hugmynd - er opin fyrir öllu, nema einhverri þvælu náttúrlega. Ég ætla ekki að strippa útá svölum Lárus, farðu að sætta þig við það.
Ég er náttúrlega að ýkja það aaaaðeins - því ég átti backupp, en það var fokk gamalt og ég hefði tapað allt að hálfu ári sem er engan vegin ásættanlegt. Þar sem vefurinn anna.is er hýstur núna er svakalegt spegla-afritunarkerfi og riddarinn sem sér um speglana alla hefur reynst mér rosalega vel.
Viðeigandi.
anna.is er actually orðin.. öruggur staður til að.. kommenta á.
--
Þorði ekki að ganga lengra en þetta, hefði stolið slagorðinu alveg en meika ekki að hitta fleiri lögfræðinga fyrr en ég hef talað við jesú. Hef ekki haft neinn tíma fyrir hann lengi - sem er skandall. Nútímakonan hefur ekki einu sinni tíma til að rækta sinn.. innri mann!
Hvernig endar þetta eiginlega?