www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
All work and no play...
Fimmtudagur, 16. nóvember 2006

..makes Jack a dull boy.

Þetta vita allir.

Færri vita hinsvegar að ég er búin að taka vinnutörn DAUÐANS síðustu daga, búin að vera svo dugleg að það er... það er RUGL og gengur ekkert endalaust svo ég er farin til útlanda, nánar tiltekið.. Law land.

Stundum rokkar það svo feitt að vera ég - það er ekki fyndið. Getur stundum verið boring, en ég reyni að leiða það hjá mér.

Ef ég drepst í þessu ferðalagi - sem er hreint ekki ólíklegt - þá finnst mér rétt að taka fram, að all in all fannst mér þessi jarðvist bara helvíti skemmtileg og ég myndi kaupa ef þetta væri kynning. Auk þess - og þetta eigið þið að vita - ung og hraust manneskja eins og ég, myndi ná mér á korteri.

Í ljósi þess hvers eðlis bloggið mitt er finnst mér viðeigandi að lokaorðin í þessari færslu séu...

"It's been real.."


| anna | 16:05 |
comments

respect cool

og góða ferð wink

Nr. 1 | posted by: baun | 16.11.2006 | 22:13:49 | [+] |

Þú skalt ekki voga þér að geispa golunni fyrr en netpósturinn minn er kominn í lag.

Nr. 2 | posted by: Eva | 17.11.2006 | 8:17:50 | [+] |

Öll blogg hafa verið að leggjast í dvala uppá síðkastið vegna vinnuálags og almenns kuldabolasyndróms.

Það er árstíðin.

Nr. 3 | posted by: Bastarður Víkinga | 17.11.2006 | 16:37:16 | [+] |

Nú er netpósturinn komin ní lag en ég kann ekki að setja inn nýjar myndir, svo þú mátt enn ekki drepast. Auk þess ætlum við að fara út að borða manstu. Ég drep Ken ef þú kemur ekki aftur.

Nr. 4 | posted by: Eva | 18.11.2006 | 8:47:55 | [+] |

Úr Spaugstofunni, 18 nóv 2006:

"Í fréttatíma kvöldsins verður rætt við Franklín Steiner um öll þau tæknilegu mistök sem hann hefur lent í á undanförnum árum"

Ekki kom fram hvort þetta væri hinn sami Franklín Steiner og sá sem vakti Ken upp frá dauðum, en það skilur eftir sig spurninguna - "Var Ken bara tæknileg mistök?"

Aftur til þín, Sigurður.

Nr. 5 | posted by: Þór | 18.11.2006 | 21:15:05 | [+] |

Þú ert bara drepfyndin. Annars segi ég bara góða ferð í Law Land. angel og ég hef trú á því að þú eigir þér fleiri líf en kötturinn og Ken, og komir því aftur. kv. Ásta

Nr. 6 | posted by: Ásta | 19.11.2006 | 20:10:25 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web