Fimmtudagur, 02. nóvember 2006
Þegar Eiríkur Jónsson hringdi í mig um daginn, sagði hann að honum fyndist það sem ég gerði á afmælinu eitt það magnaðasta sem hann hafði heyrt um í langan tíma. Sagði líka að á tímabili, þegar hann var að lesa síðuna mína, var hann ekki viss um hvað var satt og hvað var skáldskapur og fannst hann lifa einstaklega daufu lífi miðað við mig. Spurði hvort hann mætti birta myndir og skrifa söguna eins og hann upplifði hana þegar hann las síðuna mína.
Já. Ég er í Séð og Heyrt í þessari viku, "Anna Helgadóttir (35)" - og alles.

Það sem færri vita er að það kom til tals að hafa samband við Séð og heyrt áður, þannig að þeir yrðu á staðnum þegar ég hélt grímuballið. Well.. ég bannaði það. Ég er ekki celeb og mér fannst ljótt að biðja vini mína og ættingja að klæða sig í grímubúninga og sitja svo fyrir þeim grunlausum með ljósmyndara frá séð og heyrt. Það var aldrei pointið og ég gerði þetta ekki til að komast í blöðin. Ég gerði þetta til að skemmta þeim sem komu að halda uppá afmælið mitt með mér og ég er mjög ánægð með hvernig það tókst.
Eiríkur hefði getað haft fyrirsögnina:
"SÚRRANDI GEÐVEIK EINSTÆÐ MÓÐIR TAPAR SÉR Í RUGLINU"
- hehe, en ég held að honum hafi fundist það sem ég gerði einfaldlega of töff til að dissa mig fyrir það. Mér finnst það allavega.
Þó örleikritið sem sett var á svið sé til á vídeói er staðreyndin sú að ekkert videó nær alveg utanum stemminguna sem myndaðist á svölunum og inná Sólon þetta kvöld og ekkert vídeó mun nokkurtíma gera það. Ég hafði lofað gestum mínum að þeir myndu, að hluta til, stíga inní öðruvísi raunveruleika - þann sem ég hef leikið mér að því að skapa hér á blogginu og með aðstoð Ken og World Domination Corp tókst mér að gera nákvæmlega það.
Það er eiginlega lygilegt hvað þetta tókst vel miðað við aðstæður og undirbúning en ég ætla ekkert að tjá mig um það hér. Trúir engin því sem ég skrifa hér lengur - og trust me.. þetta er í alvörunni lygilegt - svo lygilegt, að það er eiginlega efni í bók.
Kem með það seinna. Kannski.
Það er greinilegt að Eiríkur var ekkert að plata mig þegar hann sagðist hafa lesið síðuna mína og að færslan um Mustanginn hefur haft impact því hann skrifar að Ken hafi gefið mér Mustang. Það er ekki rétt, Ken gaf mér Ford GT, sem er töluvert flottari og dýrari bíll, eða mér finnst það - sjálfsagt smekksatriði - enda langar mig ekkert að eiga Mustang, mig langar í karlmann sem er EINS og Mustang - illilegur og kraftmikill.
Eins og Ken er.
Annars er Ken á landinu núna, kom í gær, og ég má ekkert vera að því að blogga á meðan...
Takk fyrir okkur Eiríkur!