www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Step into the rabbit hole..
Miðvikudagur, 11. október 2006

Ég var svo utanvið mig í lok vinnudags í gær að þegar ég kom heim úr klippingu og litun var ég búin að gleyma að ég hafði bloggað og skildi ekkert í því þegar vinur minn sendi mér á msn "ertu klippt og skorin?".

How the hell did he know, hugsaði ég. Svo hrökk hamsturinn í gír og hjólið fór af stað.

Á meðan liturinn var í hausnum á mér hringdi síminn og ég var beðin um að vera formaður fyrir félagi dauður. Ég ákvað að taka það að mér og á meðan ég beið eftir litnum bjó ég til stefnuskrá fyrir veturinn í höfðinu. Nýta tímann maður - hef ekki of mikið af honum undanfarið.

Elín klikkaði ekki í gær frekar en fyrri daginn. Ekki bara gerði hún mig æðislega fína um hárið heldur plokkaði hún frumskóginn fyrir ofan augun á mér OG tók mig í slökunar höfuðnudd. And I really, really needed that. Búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Auðvitað töluðum við varla um annað á meðan en grímuballið á laugardaginn. Ég hlakka svo til. Hlakka svo til að sjá í hverju fólk mætir og það er svo gaman að tala við þá sem ætla að mæta því það er að myndast svo góð stemming. Það verður auðvitað veitt viðurkenning fyrir besta búninginn - but of course.

Eitt sem ég verð eiginlega að minnast á sem snöggvast. Í gegnum fólk sem ég þekki hef ég frétt af nokkrum sem lesa síðuna og dauðlangar að koma á laugardaginn, en þora ekki eða kunna ekki við það vegna þess að þeir þekkja mig ekki persónulega eða hefur ekki verið "formlega" boðið.

Ef þú lest anna.is reglulega þá þekkir þú mig nógu vel til að koma og það eru einfaldlega allir sem lesa síðuna velkomnir. Á næstum hverjum einasta degi býð ég fólki að staldra við í þeim raunveruleika sem ég bý til jafn óðum hér á anna.is en án þess að ég vilji segja of mikið.. þá hef ég ákveðið að taka bloggið mitt skrefinu lengra og bjóða fólki einfaldlega að stíga, að hluta til, inní minn eigin raunveruleika laugardaginn 14. október á efri hæðinni á Sólon.

Confused?

You won't be..

Aðgöngumiðinn er ekkert annað en grímubúningur að eigin vali. Ef þú vilt ekki koma einn, taktu þá vin þinn með þér. Það verður bjór, snakk, skemmtilegt fólk og allt hitt sem þarf til að skemmta sér rækilega í eina kvöldstund.

Ég þekki engan sem bítur (eftir að ég hætti að umgangast Hrafn Gunnlaugsson) svo þér er alveg óhætt.

--

Hvað er annars að gerast hjá mér þessa dagana?

Þetta: Anna.mp3.


| anna | 14:10 |
comments

http://www.humorpix.com/images/12/

ef ykkur vantar hugmyndir að búningi...og eruð gefin fyrir dýr (og ódýr átfitt)

Nr. 1 | posted by: baun | 11.10.2006 | 14:41:44 | [+] |

lol

vá hvað ég myndi deyja úr hlátri ef það kæmi einhver svona - jesús! laughing

Nr. 2 | posted by: anna | 11.10.2006 | 14:46:16 | [+] |

hahahahahahaha laughing

Lokakvöld á Norrænum músíkdögum á laugardaginn, kíki mjög líklega eftir að það er búið. wave

Nr. 3 | posted by: hildigunnur | 11.10.2006 | 14:57:14 | [+] |

Bwah laughing Þetta eru nú bara með bestu búningum sem ég hef séð laughing

Froskurinn fínn þegar maður er kominn í of marga bjóra, og lítið mál að skipta yfir í eitthvað nýtt laughing

Nr. 4 | posted by: Þór | 11.10.2006 | 15:00:31 | [+] |

já, ég er sérlega veik fyrir froskinum...og froskum yfirleitt...

finnst fíllinn gera sig fínt líka

Nr. 5 | posted by: baun | 11.10.2006 | 15:25:20 | [+] |

Hlakka til að sjá þig Hildigunnur! (Reyndu að vera komin fyrir kl 10 wink )

Mér finnst fíllinn ógeðslega töff. Og eiginlega allt hitt líka.. hehehe

Nr. 6 | posted by: anna | 11.10.2006 | 15:32:12 | [+] |

Ég kem smile ....
... dulbúin

Nr. 7 | posted by: Fríða | 11.10.2006 | 16:19:12 | [+] |

hehe hlakka til að sjá.. hvort ég þekki þig! wink

Nr. 8 | posted by: anna | 11.10.2006 | 16:40:22 | [+] |

Ohh, ég hlakka geðveikt til!!

Nr. 9 | posted by: Harpa | 11.10.2006 | 21:02:27 | [+] |

Rosalega held ég að selurinn myndi skemmta sér vel. Spurning hvort hann myndi ná sambandi við einhvern fyrr en langt væri liðið á kvöldið. sour

Nr. 10 | posted by: Gestur | 11.10.2006 | 22:09:38 | [+] |

really sad

Nr. 11 | posted by: DonPedro | 11.10.2006 | 22:58:19 | [+] |

jó!
Ég vil bara að það sé á hreinu að þessi lifur verður með í þessari dularfullu dulargervissamkunntu, í anda.
And for our asian readers, I was announcing that there will be a liver in spirit at the dance. I repeat, there will be a gassed liver at the party.
Góða skemmtun litlu aparassar og máliði nú miðbæinn húðlitaðan, eða kannski lillaðan, fyrir mig.
Hugheilar kveðjur frá landinu þar sem smáhundar með snyrt kynfæri bjóða útlendingum vinalega upp í skottís.
og gangi þér, anna mín, allt í haginn.

Nr. 12 | posted by: lifur | 12.10.2006 | 17:57:39 | [+] |

Lifur. Auðvitað verður þú með okkur í anda, ég hefði ekki tekið annað í mál! smile

Snillingur. Hvernig slappstu eiginlega úr frostinu?

wink

(sjá 9.júlí)

Nr. 13 | posted by: anna | 12.10.2006 | 18:41:19 | [+] |

ok, ok miss knows-it-all!
lifur er vissulega dautt og frosið líffæri, en ég, GÓÐA tvíburasystkinið, ákvað bara að leggja orð í líknabelg svo grindarbotninn myndi ekki detta úr þessu máli og þú sitja uppi með algerlega líffæralaust grímuball... í anda.

Nr. 14 | posted by: milta | 12.10.2006 | 18:54:00 | [+] |

ok fyrir þetta er ekki til broskall sem brosir nógu breitt. Ekkert flóknara en það.

Velkominn Milta. Hlakka til að elda grátt silfur með þér - viss um að við finnum eitthvað skemmtilegt að gera. cool

Nr. 15 | posted by: anna | 12.10.2006 | 18:59:30 | [+] |

ok þú ert á villigötum vinan!
Ef við eldum eitthvað saman verður það fjólubleikt úraníum... augljóslega!
Annars kemst ég bara stöku sinnum að tölvuskjá þar sem ég vinn hörðum höndum við að gelda mýflugur frá 9 til 9.
En ég mun fylgjast með þér með aðdáun og auðmýkt að handan þegar færi gefst, enda ótrúlega milt milta.
Skál fyrir þeim sem lifðu af!

Nr. 16 | posted by: milta | 12.10.2006 | 19:29:46 | [+] |

Já ég er á villigötum, i'm LOST!

Oh.. allar þessar mýflugur, ég tárast. Mun gera mitt besta til að gera þér veruna við tölvuskjáinn bærilega - eins og alltaf.

Hef smá áhyggjur af því að Ken sé að láta vakta síðuna, (sjá nýjustu frétt) ekkert vera að gefa upp hvar þú ert eða neitt þannig..

Skál í boðinu!

Nr. 17 | posted by: anna | 12.10.2006 | 19:39:56 | [+] |

k - k - k - k - ken
is
c - c - c - coming
to
k - k - k - kill me!

Nr. 18 | posted by: milta | 12.10.2006 | 20:54:57 | [+] |

LOL

Nr. 19 | posted by: anna | 13.10.2006 | 13:13:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web