www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skrítið..
Föstudagur, 27. október 2006

Ég er búin að tala við lögregluna og hún er að leita að Margeiri.

Furðulegt hvað maður saknar þegar hann er ekki á staðnum - eins og t.d. þegar hann er að tala og rekur við eins og það sé punctuation.

Venjulega þoli ég ekki þegar hann gerir þetta en í minningunni finnst mér þetta sætt.

Ætli þetta sé ástæðan fyrir því að hjónabönd lifa af þegar annar aðilinn er eins og Margeir nema líka drykkfelldur og týnist í marga daga?

Kannski er Margeir orðinn róni.

Ég fæ tár í augun. Veit að Lifur yrði líka stoltur af honum - þau stækka svo hratt!

Nema Margeir. Hann er líka dvergur.


| anna | 11:13 |
comments

Ég er viss um að Margeir er hólpinn. Þeir hafa bara endurunnið hann og síðan fengið hann til að hjálpa til í Íslensku Leyniþjónustunni - loftræstistokkaskriðþjónustunjósnadeildinni trúlega.

Nr. 1 | posted by: alanhudson | 27.10.2006 | 14:12:04 | [+] |

Hann er of stór á þverveginn til að fúnkera í loftræstistokkum.

Ég óttast hið versta.

Nr. 2 | posted by: anna | 27.10.2006 | 14:39:39 | [+] |

Ef þú skyldir nú ná kvikindinu til þín aftur, mæli ég með því að þú setjir staðsetningarbeacon á hann, svona eins og maður setur á fugla, ...og hvali. Kauptu bara ódýra týpu, Margeir verður ekki ófríðari við að það sé fyrirferðamikill búnaður með loftneti utan um hálsinn á honum.

Nr. 3 | posted by: DonPedro | 27.10.2006 | 15:12:36 | [+] |

Já Pedró ég mun sko GERA ÞAÐ. Tala við þig betur, þú veist væntanlega hvar maður finnur svona dót?

Nr. 4 | posted by: anna | 27.10.2006 | 15:16:50 | [+] |

Í Hvalfirðinum þegar þeir koma með næsta hræ inn?

Nr. 5 | posted by: DonPedro | 27.10.2006 | 16:48:07 | [+] |

Þegar þú hringir í lögguna til að spyrja um Margeir, veistu hvort þeir draga upplýsingablaðið um hann neðst eða efst úr málabunkanum? drunk

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 27.10.2006 | 18:09:27 | [+] |

Úps.. þeir héldu að þetta væri hundur sem ég var að lýsa eftir. Eru farnir að leita að dverg núna.

Nr. 7 | posted by: anna | 27.10.2006 | 18:34:17 | [+] |

Það er skiljanlegur misskilningur. Þú áttir auðvitað ekki að minnast á hvað hann er loðinn.

Nr. 8 | posted by: AlanHudson | 27.10.2006 | 18:36:29 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web