Frumburður: hæ, varst þú að reyna að ná í mig?
Anna: já. Ég var að reyna að ná í þig. Ég þarf að láta þig vita að ég er að fara í klippingu eftir vinnu og þið munuð því ekkert sjá mig næstu þrjá sólarhringa.
| anna | 16:44 |
comments
Bara 3 sólahringa ? Rosaleg spretta er í hárinu þínu
Vildi bara koma því á framfæri að þú ert nú meiri snillingurinn, hver sem þú svosem ert! Algjörlega að bjarga vaktinni hjá mér.. aldrei á ævinni lesið svona mikið blogg í einu! Fúffff... Þetta verður góð næturvakt.
Ég er alls ekki terminal - in fact.. þá er læknamafían að reyna að landa samningum við mig því rannsóknir hafa leitt í ljós að ég virðist koma algjörlega í staðinnn fyrir prósakk.
Nr. 5 | posted by: anna |
11.10.2006 | 10:30:09 | [+] |
Frekar vildi ég lenda í hungruðu ljóni heldur en konu sem er nýkomin úr klippingu. Það eru aðstæður þar sem karlmanni er gjörsamlega ómögulegt að lenda á löppunum. Allt sem karlmaðurinn gerir verður túlkað gegn honum og öll svör eru misjafnlega röng.