www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Riddarinn á hvíta hestinum
Sunnudagur, 29. október 2006

Þá er riddarinn á hvíta hestinum mættur á svæðið, hann er meira að segja með sverð!

Mér finnst það cool.

Hann er í þessum skrifuðu orðum að reyna að koma lag á gagnagrunninn - fræddi mig um það að síðan er keyrð á kóða sem er frá árinu 1994. Það fer um mig hrollur við tilhugsunina.

Ekki nóg með að hann ætli að reyna að laga gagnagrunninn fyrir mig (no pressure - thihi) hann hefur líka boðið mér permanent hæli fyrir anna.is og mun ég flytja til hans sem pólitískur flóttamaður innan tíðar.

Þetta eru alveg rosalega góðar fréttir fyrir mig af ástæðum sem verða ekki tíundaðar hér frekar. Ég vona svo af öllu hjarta að það sé hægt að bjarga kommentunum mínum, þau skipta mig miklu máli.

Allir sem þekkja mig vel vita hvað anna.is er órjúfanlegur hluti af höfundi bloggsins þannig að ég vona svo sannarlega að það sé nóg pláss fyrir húsgögnin mín líka - og svo þurfa börnin eiginlega sitthvort herbergið. Ekki séns að ég skilji risastóra hornbaðkarið eftir og svo þarf ég náttúrlega líka pláss fyrir búrið hans Margeirs.

DOH!

Ég gleymi alltaf að sækja hann til löggunnar.

Bygons.

Hver man þannig smáatriði?

Ég á ekki rúm svo ég gæti þurft að krassa í rúminu hans - en ég fer oft í bað svo það er sæmilega góð lykt af mér oftast og ég er ferlega góður nuddari svo það ætti að reddast - einhvernvegin.

Já og Ken þarf líka bílskúra fyrir bílana sína og mína og svefnaðstöðu fyrir 50 manns. Hlýtur að vera hægt að redda því.

Ég er btw ekki manneskja sem tek allan handlegginn þegar mér er réttur litli fingur - fannst rétt að taka þetta fram - ef það er ekki augljóst.. nú þegar.


| anna | 23:02 |
comments

riddari? sverð?

Margeir fundinn? - vildi hann láta finna sig?

ég er bara eitt stórt spurningamerki í framan hmmm

Nr. 1 | posted by: baun | 30.10.2006 | 8:28:15 | [+] |

Já hann á alvöru sverð og hann á ofboðslega fallegan hvítan hest!

Löggan fann Margeir já, þeir eru með hann í einangrun. Nema þetta sé hundur eins og síðast. Hverjum er ekki sama hvort hann vildi láta finna sig eða ekki.

Mér finnst þú sætust í framan þegar þú brosir. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 30.10.2006 | 9:22:09 | [+] |

aumingjagæska er stór galli á skapgerð minni og þaðan eru þessar sveiflukenndu áhyggjur mínar af Margeiri sprottnar. auðvitað skiptir vilji hans engu máli, það segir sig sjálft

hvar fær maður annars riddara? smile

Nr. 3 | posted by: baun | 30.10.2006 | 9:39:42 | [+] |

Ég er með sama galla - eða var - áður en ég kynntist Margeiri.

Maður fær riddara t.d. hjá Opnum Kerfum! wink

Nr. 4 | posted by: anna | 30.10.2006 | 9:42:51 | [+] |

Ábyggilega líka hægt að fá riddara líka hjá Nexus. Selja þeir ekki svona warhammer kalla og soleiðis nerd

Nr. 5 | posted by: Sigga | 30.10.2006 | 14:29:32 | [+] |

Ég held að karlmenn hafi almennt ekki áttað sig á því að stór hluti kvenna er haldinn þessu aumingjasyndrómi og eru því ennþá að rembast við að vera stórir og sterkir í návist kvenfólks. Maður á auðvitað að reyna að vera eins aumingjalegur og maður getur, spila inn á aumingjagæskuna wink
Annars sá ég á heimasíðu OK um daginn auglýst "útskiptitilboð". Ætli það sé fyrir þær sem eiga riddara fyrir og vilja skipta út ?

Nr. 6 | posted by: Hugz | 30.10.2006 | 14:33:25 | [+] |

Nei mig vantaði sérlegan Unix riddara - á hvítum hesti og með sverð. Tók þetta sérstaklega fram í auglýsingunni.

Þetta er rétt hjá þér Hugz - utan eitt. Ég veit ekki með aðrar konur.. en aumingjasyndrómið nær bara til fótanna á mér. Þ.e., ég sparka ekki eins fast þegar um aumingja er að ræða en annars. Það er líka ekkert djúsí í aumingjapakkanum. Það þarf alvöru karlmann til að kveikja í mér. Eiginlega þarf meira en alvöru karlmann. Ég er farin að örvænta.. líklega eru karlmenn almennt bara hættir að kveikja í mér!

Oh well.. það eru til verri hlutir en það. Ikea, t.d.

Þér að segja.. þá er bara einn riddari hjá OK.

AND HE'S MINE!

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOOHO

Nr. 7 | posted by: anna | 30.10.2006 | 15:44:47 | [+] |

Þú ert líka að eigin sögn komin yfir aumingjasyndrómið, þannig að maður þarf að vera varmenni með heimsdrottnunarkomplexa til þess að komast á blað hjá þér colgate

Nr. 8 | posted by: Hugz | 30.10.2006 | 16:00:56 | [+] |

tíhíhí.. þegar þú segir þetta svona.. embarassed

JÁ! ÞAÐ ER NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM ÉG ÞARF!

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 9 | posted by: anna | 30.10.2006 | 16:10:30 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web