www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Viðhald
Fimmtudagur, 19. október 2006

Ég var að klára fyrsta phone-conference-call-ið mitt.

Fékk svo góðar fréttir, að þær hljóta eiginlega að vera fitandi.

Annars hef ég verið að sinna almennu viðhaldi. Finnst gott að gera svoleðis þegar Ken er ekki á landinu, þá geng ég um með bómull á milli lakkaðra tánna, háreyðingarkrem á efri vörinni og plokka á mér augabrúnirnar. Það fer engin smá tími í svona rugl og um leið og við Ken erum orðin legit hjón mun ég ráða konu sem gerir þetta fyrir mig á meðan ég horfi á sjónvarpið. Þangað til mun hann halda að ég sé bara svona æðisleg og hárlaus by nature.

Hann veit alveg að ég er það ekki, hann er ekkert fífl. Einu sinni t.d. gleymdi ég að fjarlægja hárin af stórutá og eitt kvöldið, þegar hann var um það bil að stinga stórutá á vinstri fæti uppí sig - eins og hann á til að gera - sagði hann "what the.. " og glotti svo smá. Helvítis. Hann sá þessi fimm hár sem eru þar. FIMM HÁR! Hvaða helvítis RUGL er það? Þetta líf.

Leikur mig grátt. Ef þau væru grá væru þau hinsvegar ekki eins áberandi.

Ég er náttúrlega dökkhærð og því fylgja ýmis vandamál. Ljóshærðar konur komast upp með að sinna svona viðhaldi miklu sjaldnar, það er þaðan sem frasinn "blondes have more fun" kemur. Þær hafa einfaldlega meiri tíma til að skemmta sér því það sér engin hárin.

Ken vill hafa brúðkaupið um áramótin á eyju sem hann er að kaupa þar sem hann ætlar að hafa HQ. Vill ekki segja mér hvaða eyja það er, en lofaði að innfæddir myndu svoleiðis lýsa upp himininn í tilefni af brúðkaupi okkar. Ég er ennþá að ná utanum þá staðreynd að í byrjun árs 2007 verð ég aftur orðin gift kona, nema í þetta sinn.. Mrs Bentley.

-Eða Mrs. World. Fer eftir hversu fljótur Ken verður að ná takmarki sínu.

Það eina sem ég hef smá áhyggjur af er þetta kjarnaoddabrölt alltaf á honum. Mig langar ekki að frumburðurinn okkar verði geislavirkur.


| anna | 0:04 |
comments

Hmmm... interesting point. Ég skipti hér með yfir í ljóskur.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 19.10.2006 | 3:28:01 | [+] |

Geislavirkir frumburðir eru mjög praktískir vegna þess hvað þeir lýsa vel. Reyndu bara að láta hann ná amk 60W (veit ekki hvað það þarf langa exposure fyrir það), þá sparast heilmikið rafmagn. En kannski þarf frú Bentley to be ekki að hafa áhyggjur af því smile

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 19.10.2006 | 4:29:24 | [+] |

Lol happy

Ég vona að hann sé ekki að spá í Grímsey. En hvernig var þetta annars með silfurlitaða barnið í Löðri sem þótti svo jólalegt? Kannski gætuð þið eignast svoleiðis?

Það er bara ekki hægt að toppa eftirnafnið Mrs. World, hvernig sem á það er litið.

Nr. 3 | posted by: Gestur/Ms. G. | 19.10.2006 | 8:47:21 | [+] |

heyrði einu sinni lækni lýsa því yfir að lýtaaðgerðir flokkuðust undir "nauðsynlegt viðhald á konum"

en vissulega þarf maður að sinna viðhaldinu...

happy

Nr. 4 | posted by: baun | 19.10.2006 | 11:33:42 | [+] |

Það er sko engin lygi að "blondes have more fun" !!

laughing

Nr. 5 | posted by: Ásta | 19.10.2006 | 18:35:59 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web