Fimmtudagur, 12. október 2006
Fyrir fimm árum síðan hélt ég líka grímuball, þá var ég að halda uppá þrítugsafmælið mitt og fyrrverandi mannsins míns.
Skömmu áður var tveimur flugvélum flogið á World Trade Center. Sá atburður er í daglegu tali kallaður 9/11.
Í gær var lítilli flugvél flogið á háhýsi í NY. Tveir menn látnir.
Ég er að leyfa mér að vona að það verði jafnvel minna manntjón af völdum þess sem flýgur inn í háhýsi í NY fyrir fertugsafmælið mitt.
15. október, 2011:
"Stór fluga flaug innum glugga á háhýsi í NY í dag. Einn maður er illa snúinn á úlnið eftir að hafa misbeitt flugnaspaða. Flugan reyndist vera "flugus morkensis" lirfa mögulega ættuð frá Íran. Bandaríkjamenn íhuga hefndaraðgerðir."