www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kossar
Laugardagur, 28. október 2006

Var að lesa um fyrsta sleikinn hennar Barbie Clinton. Rifjaðist upp fyrir mér hvenær ég fór fyrst í sleik.

Ég var fjórtán ára. Ég var búin að kyssa þennan strák nokkrum sinnum á "saklausa" mátann og vorum orðin bona fide kærustupar. Þetta kvöld tróð hann tungunni upp í mig og ég ýtti honum í burtu og sagði stórhneyksluð: "ertu eitthvað vangefinn?"

Man ennþá hvað mér fannst hann steiktur í hausnum að gera þetta.

Hann hló taugatrekktum hlátri, man ennþá hvað hann var.. hissa.. á því að ég hafði greinilega aldrei prófað þetta áður. Svo reyndi að útskýra fyrir mér að það væri eiginlega.. ég.. sem væri vangefin ekki hann. Ég var nú ekki alveg tilbúin að kaupa það.

Hann þurfti að beita töluverðum fortölum til að fá mig til að prófa þetta, aumingja strákurinn.

Ég var svo græn.

Get varla talist græn lengur og fortölur eru hættar að virka á mig. Ef mig langar ekki, þá langar mig ekki og ekki séns að fá viðbrögð frá mér. Má samt segja að þessi strákur hafi gert mig að þeim kyssara sem ég er í dag, enda lögðumst við í stífar æfingar eftir þetta eins og við værum að fara á ólympíuleikana í sleik. Slitnaði ekki slefið á milli okkar. Það var ekkert smá gott að kyssa hann og það er ekki gefið.

Samt er þetta ekki flókið.

Jú. Þetta er flókið. Ég get allavega ekki lýst því hvernig á að gera þetta rétt.

Líklega hafa sumir þetta í sér og aðrir ekki. Kannski passar fólk einfaldlega misjafnlega saman. Það sem mér finnst gott finnst öðrum kannski ekkert sérlega gott og vice versa.

Ég veit það ekki. Ég sé yfirleitt í augunum á viðkomandi hvort mér finnst gott að kyssa hann. Ég veit áður en ég er svo mikið sem snert hvort það virkar fyrir mig eða ekki. Það er þetta.. óskilgreinda sem engin hefur orð yfir og sú staðreynd að koss er ekki bara koss. Hann er svo miklu meira en það. Þetta er eins og þú getur ekki byrjað á því að setja krem á köku áður en þú bakar hana. Góður koss hefur ákveðinn aðdraganda og þú þarft að vita hvenær rétta mómentið er. Þessi aðdragandi getur verið nokkrar vikur, dagar, klukkutímar eða jafnvel nokkrar mínútur. Fer allt eftir hvað mikið kemistrí er í gangi og þú feikar ekki kemistrí.

Þegar Ken kyssti mig fyrst á grímuballinu, þegar hann hafði gefið mér hring og rós, það var alveg yndislegur koss - svona - "ég elska þig" koss. Varfærnislegur og þrunginn tilfinningu. Við bílinn kyssti hann mig öðruvísi kossi, ekkert minna tilfinningaþrunginn en það var "ég þrái þig" koss og ég er sucker fyrir þannig kossum, skilst að það sé heróín skylt efni sem heilinn framleiðir við þannig koss.

Þriðji kossinn sem hann kyssti mig var "verð að fara en mig langar ekki til þess" koss. Samlegðaráhrif þessara kossa er hægt að beinlínis sjá á mér í lok þriðja og síðasta myndbandsins. Maður sem getur látið mig geisla svona.. hann hefur það sem þarf.

Við lifum bara einu sinni. Einu sinni.

Mistök eru dýr.

Held að það sé rosalega verðmætt að þekkja tilfinningar sínar. Ekkert eins ömurlegt og að átta sig á því að þú ýttir þessum rétta í burtu frá þér, af því þú varst fáviti. Ég ætla ekki að vera fáviti. Og ég ætla bara að kyssa Ken, for the rest of my life. Það er svo auðvelt.

Mig langar ekki að kyssa neinn annan en hann hvort sem er.


| anna | 14:33 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web